Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Mogadon 5 mg töflur nítrazepam

Wielkość: px
Rozpocząć pokaz od strony:

Download "Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Mogadon 5 mg töflur nítrazepam"

Transkrypt

1 Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Mogadon 5 mg töflur nítrazepam Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að taka lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar. - Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. - Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum. - Þessu lyfi hefur verið ávísað til persónulegra nota. Ekki má gefa það öðrum. Það getur valdið þeim skaða, jafnvel þótt um sömu sjúkdómseinkenni sé að ræða. - Látið lækninn, lyfjafræðing eða hjúkrunarfræðinginn vita um allar aukaverkanir. Þetta gildir einnig um aukaverkanir sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Sjá kafla 4. Í fylgiseðlinum eru eftirfarandi kaflar: 1. Upplýsingar um Mogadon og við hverju það er notað 2. Áður en byrjað er að nota Mogadon 3. Hvernig nota á Mogadon 4. Hugsanlegar aukaverkanir 5. Hvernig geyma á Mogadon 6. Pakkningar og aðrar upplýsingar 1. Upplýsingar um Mogadon og við hverju það er notað Mogadon hefur áhrif á boðflutning með tilteknum boðefnum í miðtaugakerfinu og veldur þannig svæfandi, róandi, vöðvaslakandi og krampastillandi áhrifum. Hjá sjúklingum með flogaveiki kemur Mogadon í veg fyrir að boð sem koma af stað flogakasti breiðist út um heilann. Þannig bælir það og kemur í veg fyrir flogaköst. Mogadon er notað sem svefnlyf við mismunandi svefnraskanir (erfiðleika við að sofna, að vakna of snemma eða að vakna of oft á næturnar). Mogadon er einnig notað við ýmsum tegundum floga (ódæmigerðum eða dæmigerðum petit mal flogaköstum), sem einkum koma fram hjá börnum (kippaflogaveiki ungbarna og petit mal flogaköstum). Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð. 2. Áður en byrjað er að nota Mogadon Ekki má nota Mogadon: - ef um er að ræða ofnæmi fyrir nítrazepam eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins (talin upp í kafla 6) - ef þú færð stundum öndunartruflanir í svefni (kæfisvefn) - ef þú ert með alvarlega öndunarbilun - ef þú ert með skerta öndunargetu vegna alvarlegs máttleysis í vöðvum (vöðvaslensfár) - ef þú ert með alvarlega lifrarbilun - ef þú ert með alvarlega nýrnabilun - til skammtímameðferðar við svefnvandamálum hjá börnum og unglingum - ef þú ert með skemmdir í miðtaugakerfinu sem valda skertri stjórn á vöðvum Varnaðarorð og varúðarreglur Leitið ráða hjá lækninum, lyfjafræðingi eða hjúkrunarfræðingi áður en Mogadon er notað: Ræddu við lækni: - ef þú ert með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi 1

2 - ef þú ert með öndunarvandamál - ef þú misnotar áfengi eða lyf - ef heilsufar þitt er almennt lélegt Hætta er á ávanabindingu við langvarandi notkun Mogadon eða stóra skammta. Ef skyndilega er hætt að taka Mogadon eftir reglulega notkun í langan tíma getur orðið vart við skjálfta, eirðarleysi, svefnleysi, óróleika, höfuðverk og einbeitingarerfiðleika. Í sumum tilvikum getur orðið vart við svitamyndun, vöðva- og magakrampa, breytta raunveruleikaskynjun eða óráð (ruglástand með ofskynjunum). Þetta getur staðið allt frá nokkrum klukkustundum upp í viku eða lengur. Þessi einkenni koma ekki fram eða verða vægari ef skammtar eru minnkaðir smám saman. Aldrei á að breyta skömmtum án samráðs við lækninn. Til að forðast minnisgloppur á svefn að vera órofinn í 7-8 klukkustundir eftir töku Mogadon. Notkun annarra lyfja samhliða Mogadon Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um önnur lyf sem eru notuð, hafa nýlega verið notuð, eða kynnu að verða notuð. Samhliða notkun Mogadon og ópíóíðlyfja (sterk verkjalyf (t.d. morfín), lyf til meðferðar sjúklinga sem eru háðir ópíóíðum og sum hóstalyf) eykur hættu á slævingu, öndunarerfiðleikum (öndunarbælingu), dauðadái og getur verið lífshættuleg. Vegna þess á ekki að ávísa lyfinu samhliða slíkum lyfjum nema önnur meðferðarúrræði séu ekki tiltæk. Ef læknirinn ákveður samt sem áður að ávísa Mogadon samhliða ópíóíðlyfjum á hann að takmarka skammtastærð og meðferðarlengd. Látið lækninn vita um öll ópíóíðlyf sem notuð eru og fylgið skammtaleiðbeiningum hans nákvæmlega. Gagnlegt getur verið að biðja vini og aðstandendur að vera á varðbergi gagnvart ofantöldum ummerkjum og einkennum. Hafið samband við lækni ef slík einkenni koma fram. Önnur lyf sem notuð eru samhliða Mogadon geta haft áhrif á árangur meðferðarinnar. Læknirinn sem annast meðferðina þarf því að vita um önnur lyf sem notuð eru samhliða, svo sem: - veirulyf (boceprevír) - veirulyf sem notuð eru við HIV-sýkingu (ritonavír) - sýklalyf (klaritrómycín) - sveppalyf (ítrakónazól) Ræddu við lækninn áður en þú notar eitthvert eftirtalinna lyfja samhliða Mogadon: - Svefnlyf - Róandi lyf - Krampastillandi lyf við þunglyndi - Verkjalyf - Kvíðastillandi lyf - Flogaveikilyf - Geðrofslyf (t.d. lyf við geðklofa eða geðrofi) - Blóðþrýstingslækkandi lyf og betablokka (lyf við háum blóðþrýstingi) Samhliða meðferð með teófyllíni og/eða amínófyllíni getur dregið úr róandi áhrifum benzódíazepínlyfja. Notkun Mogadon með áfengi Áfengi eykur róandi verkun Mogadon og því á ekki að neyta þess meðan lyfið er notað. Meðganga og brjóstagjöf Við meðgöngu, brjóstagjöf, grun um þungun eða ef þungun er fyrirhuguð skal leita ráða hjá lækninum eða lyfjafræðingi áður en lyfið er notað. Hætta er á áhrifum á fóstur. Leitið ráða hjá lækninum eða lyfjafræðingi áður en lyf eru notuð. 2

3 Mogadon berst í brjóstamjólk og konur með barn á brjósti eiga ekki að taka lyfið. Akstur og notkun véla Mogadon getur skert viðbragðsgetu hjá sumum, auk þess að valda aukaverkunum svo sem syfju, sundli, einbeitingarerfiðleikum og tvísýni. Þetta ber að hafa í huga við aðstæður þar sem mikillar árvekni er krafist, t.d. við akstur og nákvæmnisvinnu. Neysla áfengis getur magnað hugsanlega syfju og því á að forðast hana. Hver og einn verður að leggja mat á getu sína til aksturs og starfa sem krefjast óskertrar árvekni. Eitt af því sem getur haft áhrif á slíkt er lyf, vegna verkunar sinnar eða aukaverkana. Lýsing á verkun og aukaverkunum er í öðrum köflum fylgiseðilsins. Lesið því allan fylgiseðilinn. Ef þörf er á skal ræða þetta við lækni eða lyfjafræðing. Mogadon inniheldur laktósa Ef óþol fyrir sykrum hefur verið staðfest skal hafa samband við lækni áður en lyfið er tekið inn. 3. Hvernig nota á Mogadon Notið lyfið alltaf eins og læknirinn hefur sagt til um. Ef ekki er ljóst hvernig nota á lyfið skal leita upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi. Læknirinn ákveður skammtinn, sem er einstaklingsbundinn. Ekki á að breyta ávísuðum skammti án þess að ræða það við lækninn. Hægt er að tyggja töflurnar, gleypa eða leysa upp í vökva. Taka á töflurnar u.þ.b. 30 mínútum áður en gengið er til náða. Ef notaður er stærri skammtur en mælt er fyrir um Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími ) til að meta hættuna og leita ráða. Væg einkenni ofskömmtunar eru syfja, sundl, rugl, skert meðvitund og talerfiðleikar. Ef gleymist að nota Mogadon Ekki á að tvöfalda skammt til að bæta upp skammt sem gleymst hefur að taka. Ef hætt er að nota Mogadon Ef skyndilega er hætt að taka Mogadon eftir reglulega notkun í langan tíma getur orðið vart við skjálfta, eirðarleysi, svefnleysi, óróleika, höfuðverk, þunglyndi, skapsveiflur og einbeitingarerfiðleika. Í sumum tilvikum getur orðið vart við svitamyndun, vöðva- og magakrampa, dofa og náladofa í höndum og fótum, breytta raunveruleikaskynjun, óráð (ruglástand með ofskynjunum) eða aukið næmi fyrir hljóði, ljósi og snertingu. Þetta getur staðið allt frá nokkrum klukkustundum upp í viku eða lengur. Þessi einkenni koma ekki fram eða verða vægari ef skammtar eru minnkaðir smám saman. Aldrei á að breyta skömmtum án samráðs við lækninn. 4. Hugsanlegar aukaverkanir Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum, en það gerist þó ekki hjá öllum. Hætta á að taka Mogadon og hafa tafarlaust samband við lækni ef fram koma einkenni ofsabjúgs, svo sem þroti í andliti, tungu eða koki, kyngingarerfiðleikar eða ofsakláði og öndunarerfiðleikar. Þessi aukaverkun kemur örsjaldan fyrir. Í mjög sjaldgæfum tilvikum getur Mogadon haft áhrif á hvítar blóðfrumur, þannig að ónæmiskerfið veiklist. Ef þú færð sýkingu með einkennum svo sem hita og verulega skertri almennri líðan eða hita með staðbundnum einkennum sýkingar, svo sem eymslum í hálsi/koki/munni eða erfiðleikum við 3

4 þvaglát, á að leita til læknis tafarlaust svo hægt sé að útiloka skort á hvítum blóðfrumum (kyrningahrap) með blóðsýni. Mikilvægt er að upplýsa um alla lyfjanotkun. Algengar (geta komið fram hjá fleiri en 1 af hverjum 100 sjúklingum): Þreyta, öndunarbæling, aukin munnvatnsmyndun, virkjun undirliggjandi þunglyndis. Sjaldgæfar (geta komið fram hjá allt að 1 af hverjum 100 sjúklingum): Jafnvægisraskanir, erfiðleikar við samhæfingu hreyfinga, einbeitingarerfiðleikar, skert viðbragðsgeta, dofi, vöðvaslappleiki, brátt ruglástand, svefnleysi. Mjög sjaldgæfar (geta komið fram hjá allt að 1 af hverjum sjúklingum): Magavandamál, vindgangur, ógleði, ofnæmisviðbrögð í húð, skapsveiflur, kvíði. Mikil fækkun blóðfrumna, sem getur valdið máttleysi, marblettum og aukinni tilhneigingu til sýkinga, gula, flogaveiki, pirringur, fráhvarfseinkenni. Koma örsjaldan fyrir (hjá allt að 1 af hverjum sjúklingum): Húðþroti, ofnæmisviðbrögð, öflug ofnæmisviðbrögð (bráðaofnæmislost). Tíðni ekki þekkt (ekki hægt að áætla tíðni út frá fyrirliggjandi gögnum): Ávanabinding, minnistap, minnisgloppur, syfja, rugl, talerfiðleikar. Aukaverkanir koma oftast fram við upphaf meðferðar, en minnka yfirleitt eftir nokkra daga. Í mjög sjaldgæfum tilvikum getur aukin munnvatnsmyndun og slímmyndun leitt til lungnabólgu hjá ungbörnum, litlum börnum og öldruðum rúmliggjandi sjúklingum. Stórir skammtar geta valdið rugli hjá öldruðum. Tilkynning aukaverkana Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir. Þetta gildir einnig um aukaverkanir sem ekki er minnst á í þessum fylgiseðli. Einnig er hægt að tilkynna aukaverkanir beint til Lyfjastofnunar, Með því að tilkynna aukaverkanir er hægt að hjálpa til við að auka upplýsingar um öryggi lyfsins. 5. Hvernig geyma á Mogadon Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Engin sérstök fyrirmæli eru um geymsluaðstæður lyfsins. Ekki skal nota lyfið eftir fyrningardagsetningu sem er á umbúðunum á eftir EXP. Fyrningardagsetning er síðasti dagur mánaðarins sem þar kemur fram. Ekki má skola lyfjum niður í frárennslislagnir eða fleygja þeim með heimilissorpi. Leitið ráða í apóteki um hvernig heppilegast er að farga lyfjum sem hætt er að nota. Markmiðið er að vernda umhverfið. 6. Pakkningar og aðrar upplýsingar Mogadon inniheldur - Virka innihaldsefnið er nítrazepam. - Önnur innihaldsefni eru vatnsfrír laktósi, maíssterkja og magnesíumsterat. Lýsing á útliti Mogadon og pakkningastærðir Hvít eða beinhvít, kringlótt og slétt tafla með skáskornum brúnum. Taflan er með deiliskoru á annarri hlið og V MOG 5 greypt í hina hliðina. Pakkningastærðir: 10 eða 50 töflur í þynnupakkningu, 100 töflur í glerglasi. Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar. 4

5 Markaðsleyfishafi Meda AB Box Solna Svíþjóð. Framleiðandi Labiana Pharmaceuticals Casanova, Corbera de Llobregat, Barcelona Spánn. eða ICN Polfa Rzeszów S.A. ul. Przemysłowa Rzeszów Pólland. Umboð á Íslandi Icepharma hf. Lynghálsi Reykjavík Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Librax 5 mg/2,5 mg húðaðar töflur. klórdíazepoxíð/klídínbrómíð

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Librax 5 mg/2,5 mg húðaðar töflur. klórdíazepoxíð/klídínbrómíð Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Librax 5 mg/2,5 mg húðaðar töflur klórdíazepoxíð/klídínbrómíð Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar.

Bardziej szczegółowo

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Coversyl Novum 5 mg filmuhúðuð tafla perindóprílarginín

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Coversyl Novum 5 mg filmuhúðuð tafla perindóprílarginín Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Coversyl Novum 5 mg filmuhúðuð tafla perindóprílarginín Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar.

Bardziej szczegółowo

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Entocort 2 mg, tafla fyrir endaþarmsdreifu. Búdesóníð

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Entocort 2 mg, tafla fyrir endaþarmsdreifu. Búdesóníð Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins Entocort 2 mg, tafla fyrir endaþarmsdreifu Búdesóníð Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru mikilvægar upplýsingar.

Bardziej szczegółowo

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir sjúkling. Tamsulosin Mylan 0,4 mg hart hylki með breyttan losunarhraða tamsulosinhýdróklóríð

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir sjúkling. Tamsulosin Mylan 0,4 mg hart hylki með breyttan losunarhraða tamsulosinhýdróklóríð Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir sjúkling Tamsulosin Mylan 0,4 mg hart hylki með breyttan losunarhraða tamsulosinhýdróklóríð Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Í honum eru

Bardziej szczegółowo

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS

VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS VIÐAUKI I SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS 1 1. HEITI LYFS Thymanax 25 mg filmuhúðaðar töflur 2. INNIHALDSLÝSING Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 25 mg af agómelatíni. Hjálparefni með þekkta verkun: hver tafla

Bardziej szczegółowo

Við og börnin okkar. My i nasze dzieci. Ministerstwo Spraw Socjalnych. Miasto Reykjavik. Reykjavík 2012

Við og börnin okkar. My i nasze dzieci. Ministerstwo Spraw Socjalnych. Miasto Reykjavik. Reykjavík 2012 Íslenska Pólska Ministerstwo Spraw Socjalnych Miasto Reykjavik Við og börnin okkar My i nasze dzieci Reykjavík 2012 Myndir: / Obrazki: Rán Flygenring Umbrot: / układ graficzny: Kristján Sigurðsson Rodzina

Bardziej szczegółowo

Stefna Reykjavíkurborgar gegn einelti, áreitni og ofbeldi. Polityka zapobiegania mobbingowi, molestowaniu i przemocy

Stefna Reykjavíkurborgar gegn einelti, áreitni og ofbeldi. Polityka zapobiegania mobbingowi, molestowaniu i przemocy Stefna Reykjavíkurborgar gegn einelti, áreitni og ofbeldi Polityka zapobiegania mobbingowi, molestowaniu i przemocy 2 Gagnkvæm virðing er mikilvæg Szanujmy siebie i innych 3 Efnisyfirlit Stefnuyfirlýsing...

Bardziej szczegółowo

Q1 Barninu mínu líður vel í skólanum.(moje dziecko czuje się dobrze w szkole - My child enjoys staying at the school)

Q1 Barninu mínu líður vel í skólanum.(moje dziecko czuje się dobrze w szkole - My child enjoys staying at the school) Q1 Barninu mínu líður vel í skólanum.(moje dziecko czuje się dobrze w szkole - My child enjoys staying at the school)... (raczej sie... Frekar ósammála... (nie... (zgadzam sie - I really agree) (raczej

Bardziej szczegółowo

Tvö þrjú fjögur tungumál? Dwa trzy cztery języki?

Tvö þrjú fjögur tungumál? Dwa trzy cztery języki? ÍSLENSKA / POLISH Spurningar og svör fyrir fjöltyngdar fjölskyldur Pytania i odpowiedzi dla rodzin wielojęzycznych Tvö þrjú fjögur tungumál? Dwa trzy cztery języki? Reykjavík 2006 ÍSLENSKA POLISH Tvítyngi

Bardziej szczegółowo

5 kafli Ljós - wiato. Orðaforði bls. 135. hugtak merking termin polski definicja. inwersja rozproszona

5 kafli Ljós - wiato. Orðaforði bls. 135. hugtak merking termin polski definicja. inwersja rozproszona 5 kafli Ljós - wiato KAFLAHLUTAR 5-1 Hvað er ljós? Czym jest wiato? 5-2 Ljósgjafar róda wiata 5-3 Speglun Inwersja (odbicie) 5-4 Ljósbrot Zaamanie wiata 5-5 Litir ljóssins Barwy wiata 5-6 Ljós og tækni

Bardziej szczegółowo

Við og börnin okkar. My i nasze dzieci. Hvert get ég leitað? Gdzie mogę się zwrócić o pomoc?

Við og börnin okkar. My i nasze dzieci. Hvert get ég leitað? Gdzie mogę się zwrócić o pomoc? Íslenska Hvert get ég leitað? Gdzie mogę się zwrócić o pomoc? Neyðarlínan 112 Allir geta hringt í 112 og úr öllum símum. Samband næst við 112 þó svo ekkert símakort sé í símanum, þó svo að enginn inneign

Bardziej szczegółowo

Réttur þinn Mikilvægar upplýsingar fyrir erlendar konur á Íslandi

Réttur þinn Mikilvægar upplýsingar fyrir erlendar konur á Íslandi Mikilvægar upplýsingar fyrir erlendar konur á Íslandi informacje dla kobiet obcego pochodzenia mieszkających na Islandii Íslenska Pólska 2 3 Bæklingur þessi er útgefinn af Jafnréttisstofu og styrktur af

Bardziej szczegółowo

3. kafli - Rafmagn og segulmagn Elektryczno i magnetyzm

3. kafli - Rafmagn og segulmagn Elektryczno i magnetyzm - Rafmagn og segulmagn Elektryczno i magnetyzm KAFLAHLUTAR 3-1 Rafhleðsla Elektryzowanie cia 3-2 Stöðurafmagn adunek stacjonarny 3-3 Streymi rafmagns Przepyw adunków elektrycznych 3-4 Straumrásir Fale

Bardziej szczegółowo

2. kafli Eðli lífsins - Istota ycia

2. kafli Eðli lífsins - Istota ycia Eðli lífsins - Istota ycia KAFLAHLUTAR 2-1 Einkenni lífvera Cechy organizmów 2-2 Nauðþurftir lífvera Potrzeby yciowe organizmów 2-3 Efni í lífverum Budulec organizmów Markmiðið kaflans: Powiniene umie:

Bardziej szczegółowo

Réttur þinn Mikilvægar upplýsingar fyrir erlendar konur á Íslandi

Réttur þinn Mikilvægar upplýsingar fyrir erlendar konur á Íslandi Mikilvægar upplýsingar fyrir erlendar konur á Íslandi ważne informacje dla cudzoziemek na Islandii Íslenska Pólska Bæklingur þessi er útgefinn af Jafnréttisstofu og styrktur af Progress áætlun Evrópusambandsins

Bardziej szczegółowo

PIERWSZE KROKI. Polski NA ISLANDII. Pólska. Broszura informacyjna dla cudzoziemców osiedlających się na Islandii

PIERWSZE KROKI. Polski NA ISLANDII. Pólska. Broszura informacyjna dla cudzoziemców osiedlających się na Islandii Polski PL Pólska PIERWSZE KROKI NA ISLANDII Broszura informacyjna dla cudzoziemców osiedlających się na Islandii Efnisyfirlit íslenska 4. Velkomin til Íslands 8. Mikilvægt að athuga 10. Almenn réttindi

Bardziej szczegółowo

Samkomulag við launanefnd ríkisins - þín kjör

Samkomulag við launanefnd ríkisins - þín kjör Samkomulag við launanefnd ríkisins - þín kjör Íslenska English Polski Ágæti félagi, Starfsgreinasamband Íslands hefur undirritað nýtt samkomulag við launanefnd ríkisins fyrir hönd eftirtalinna stéttarfélaga:

Bardziej szczegółowo

Blábarnabókarþýðingarfræðiritgerð

Blábarnabókarþýðingarfræðiritgerð Hugvísindasvið Blábarnabókarþýðingarfræðiritgerð Umfjöllun um pólska þýðingu á hluta Sögunnar af bláa hnettinum Ritgerð til B.A.-prófs Aleksandra Maria Cieślińska Maí 2010 Háskóli Íslands Hugvísindasvið

Bardziej szczegółowo

Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy. Réttindi og kjör erlendra starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði

Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy. Réttindi og kjör erlendra starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy Wyciąg z umowy zbiorowej (kjarasamningur) Réttindi og kjör erlendra starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði Útdráttur úr kjarasamningum

Bardziej szczegółowo

Hver er óskin? Háskóli Íslands. Hugvísindasvið Íslenska sem annað mál. Pólsk þýðing á hluta af Galdra-Lofti eftir Jóhann Sigurjónsson

Hver er óskin? Háskóli Íslands. Hugvísindasvið Íslenska sem annað mál. Pólsk þýðing á hluta af Galdra-Lofti eftir Jóhann Sigurjónsson Háskóli Íslands Hugvísindasvið Íslenska sem annað mál Hver er óskin? Pólsk þýðing á hluta af Galdra-Lofti eftir Jóhann Sigurjónsson Ritgerð til BA í íslensku sem annað mál Agnieszka Bikowska Kt.: 151185-5099

Bardziej szczegółowo

Einn - Einn - Tveir dagurinn

Einn - Einn - Tveir dagurinn Snæfellsnesi www.landsbankinn.is 1-1-2 dagurinn var haldinn þann 11. febrúar um allt land, viðbragðsaðilar í Snæfellsbæ létu ekki sitt eftir liggja og buðu upp á læti og fjör. Undanfarin ár hefur verið

Bardziej szczegółowo

Lífheimurinn Litróf náttúrunnar

Lífheimurinn Litróf náttúrunnar Lífheimurinn Litróf náttúrunnar Hálfdán Ómar Hálfdánarson þýddi og staðfærði Námsgagnastofnun 2010 Aðlagað námsefni Helga Hauksdóttir kennsluráðgjafi hjá skóladeild Akureyrarbæjar 2012 (pólskar útskýringar

Bardziej szczegółowo

III. Niðurstöður í hnotskurn Podsumowanie ankiety

III. Niðurstöður í hnotskurn Podsumowanie ankiety III. Niðurstöður í hnotskurn Podsumowanie ankiety 1. Búseta Pobyt Um 56% þátttakenda rannsóknarinnar fluttu til Íslands á síðustu 5 árum (2004-2009) (sjá mynd V.1). Okolo 56% ankietowanych przyjechało

Bardziej szczegółowo

Dauðarósir í pólsku þýðingu

Dauðarósir í pólsku þýðingu Hugvísindasvið Dauðarósir í pólsku þýðingu Þýðing á hluta bókarinnar Dauðarósir eftir Arnald Indriðason og greinargerð um hana Ritgerð til BA -prófs í Íslensku sem öðru máli Patrycja Szymańska September

Bardziej szczegółowo

Áttundi Grænfáninn til Lýsuhólsskóla Þann 24. nóvember flögguðu nemendur og starfsfólk Grunnskóla

Áttundi Grænfáninn til Lýsuhólsskóla Þann 24. nóvember flögguðu nemendur og starfsfólk Grunnskóla 855. tbl - 18. árg. 29. nóvember 2018 Áttundi Grænfáninn til Lýsuhólsskóla Þann 24. nóvember flögguðu nemendur og starfsfólk Grunnskóla Snæfellsbæjar, Lýsu hólsskóla, sínum áttunda Grænfána en skólinn

Bardziej szczegółowo

ATKVÆÐAGREIÐSLA GŁOSOWANIE VOTE XXXXXXX

ATKVÆÐAGREIÐSLA GŁOSOWANIE VOTE XXXXXXX ATKVÆÐAGREIÐSLA Um atkvæðagreiðsluna Allir félagsmenn eru á kjörskrá í atkvæðagreiðslunni og framkvæmdin er rafræn. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kosið hjá stéttarfélagi sínu. Félagsmenn fara

Bardziej szczegółowo

Co mówią obcokrajowcy mieszkający w Reykjaviku?

Co mówią obcokrajowcy mieszkający w Reykjaviku? Co mówią obcokrajowcy mieszkający w Reykjaviku? Raport z Konferencji Wielokulturowej 2010 Spis treści Wstęp... 3 Przygotowanie konferencji... 3 Obcokrajowcy mieszkający w Reykjaviku... 4 Skład konferencji...

Bardziej szczegółowo

Velkomin. Zapraszamy. til samstarfs um leikskólabarnið! Ciebie i twojego przedszkolaka do współpracy! Pólska. Reykjavíkurborg Skóla- og frístundasvið

Velkomin. Zapraszamy. til samstarfs um leikskólabarnið! Ciebie i twojego przedszkolaka do współpracy! Pólska. Reykjavíkurborg Skóla- og frístundasvið Velkomin til samstarfs um leikskólabarnið! Zapraszamy Ciebie i twojego przedszkolaka do współpracy! Reykjavíkurborg Skóla- og frístundasvið Pólska VELKOMIN TIL SAMSTARFS Við bjóðum þér til samstarfs með

Bardziej szczegółowo

Lundi í Vigur. Dýrðardagar við Djúp. Stofnað 14. nóvember 1984 Fimmtudagur 23. júlí tbl. 32. árg. Ókeypis eintak. sjá bls. 6 og 7.

Lundi í Vigur. Dýrðardagar við Djúp. Stofnað 14. nóvember 1984 Fimmtudagur 23. júlí tbl. 32. árg. Ókeypis eintak. sjá bls. 6 og 7. Dýrðardagar við Djúp Auðvitað var ég ungur og óreyndur í þá daga. En einhvern veginn gekk þetta allt vel. Og ég held bara að ég hafi þroskast heilmikið á þessum árum sem liðin eru síðan að mér skolaði

Bardziej szczegółowo

Býrð þú við ofbeldi? Is domestic violence a part of your life? Czy jestes ofiara przemocy?

Býrð þú við ofbeldi? Is domestic violence a part of your life? Czy jestes ofiara przemocy? Býrð þú við ofbeldi? Is domestic violence a part of your life? Czy jestes ofiara przemocy? ... að viðurkenna að maður sé beittur ofbeldi er fyrsta skrefið í að leita sér hjálpar.... admitting to violence

Bardziej szczegółowo

Hér vantar upplýsingar á pólsku

Hér vantar upplýsingar á pólsku Hugvísindasvið Hér vantar upplýsingar á pólsku Pólsk þýðing á hluta af vefsíðu Vinnumálastofnunar Ritgerð til B.A.-prófs Dominika Sigmundsson September 2011 1 Háskóli Íslands Hugvísindasvið Íslenska sem

Bardziej szczegółowo

Síða 1. Efnisyfirlit

Síða 1. Efnisyfirlit Síða 1 Efnisyfirlit I INNGANGUR... 2 II UNDIRBÚNINGUR ÞINGSINS... 2 III INNFLYTJENDUR... 2 IV FYRIRKOMULAG FJÖLMENNINGARÞINGSINS... 5 V KOSNING Í FJÖLMENNINGARRÁÐ... 6 VI HELSTU NIÐURSTÖÐUR... 7 VI.A SAMFÉLAGSFRÆÐSLA

Bardziej szczegółowo

Orlofshús vest.is. Vouchery na przeloty Icelandair. verð ur það sama og síð ustu fjögur sumur.

Orlofshús vest.is. Vouchery na przeloty Icelandair. verð ur það sama og síð ustu fjögur sumur. Hafnarfjallið og nágrenni skarta hér haustlitum eftir langt og gott sumar. Vonandi verður komandi sumar ekki síðra. Mynd: Róbert Orlofshús 2011 Stéttarfélag Vesturlands óskar félagsmönnum gleðilegs sumars

Bardziej szczegółowo

ZAŁĄCZNIK. Wniosku dotyczącego decyzji Rady

ZAŁĄCZNIK. Wniosku dotyczącego decyzji Rady KOMISJA EUROPEJSKA Bruksela, dnia 12.6.2014 r. COM(2014) 351 final ANNEX 1 ZAŁĄCZNIK DECYZJA WSPÓLNEGO KOMITETU EOG Nr.../2014 z dnia zmieniająca załącznik II (Przepisy techniczne, normy, badania i certyfikacja)

Bardziej szczegółowo

Ung-og smábarnavernd Leiðbeiningar um heilsuvernd barna 0 5 ára

Ung-og smábarnavernd Leiðbeiningar um heilsuvernd barna 0 5 ára Hugvísindasvið Ung-og smábarnavernd Leiðbeiningar um heilsuvernd barna 0 5 ára Pólsk þýðing með athugasemdum Ritgerð til BA -prófs í Íslensku sem öðru máli Anna Karen Svövudóttir Maí 2016 Háskóli Íslands

Bardziej szczegółowo

Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy

Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy Wyciąg z umowy zbiorowej (kjarasamningur) Réttindi og kjör erlendra starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði Útdráttur úr kjarasamningum

Bardziej szczegółowo

Síða 1. Efnisyfirlit

Síða 1. Efnisyfirlit Síða 1 Efnisyfirlit I INNGANGUR... 2 II UNDIRBÚNINGUR ÞINGSINS... 2 III INNFLYTJENDUR... 2 IV FYRIRKOMULAG FJÖLMENNINGARÞINGSINS... 5 V KOSNING Í FJÖLMENNINGARRÁÐ... 6 VI HELSTU NIÐURSTÖÐUR... 7 VI.A SAMFÉLAGSFRÆÐSLA

Bardziej szczegółowo

ATKVÆÐAGREIÐSLA GŁOSOWANIE

ATKVÆÐAGREIÐSLA GŁOSOWANIE ATKVÆÐAGREIÐSLA GŁOSOWANIE Um atkvæðagreiðsluna Fyrri atkvæðagreiðsla okkar var dæmd ólögmæt og því er hún endurtekin núna og greint á milli aðildarfélaga innan SGS og þeirra samninga sem kosið er um.

Bardziej szczegółowo

AÐALNÁMSKRÁ LEIKSKÓLA 2011 (4. 14. kafli)

AÐALNÁMSKRÁ LEIKSKÓLA 2011 (4. 14. kafli) Hugvísindasvið AÐALNÁMSKRÁ LEIKSKÓLA 2011 (4. 14. kafli) Pólsk þýðing með athugasemdum Ritgerð til BA -prófs Grzegorz Ryszard Chaberka Maí 2013 Háskóli Íslands Hugvísindasvið Íslenska sem annað mál AÐALNÁMSKRÁ

Bardziej szczegółowo

HH kaupir nýtt Rifsnes. Grindhvalir syntu á land

HH kaupir nýtt Rifsnes. Grindhvalir syntu á land Snæfellsnesi www.landsbankinn.is Hraðfrystihús Hellissands hefur fest kaup á 775 brúttótonna skipi frá Noregi, nýja skipið heitir M/S Polarbris og er smíðað í Noregi árið 1999. Skipið á að leysa Rifsnes

Bardziej szczegółowo

Heimir Pálsson og Höskuldur Þráinsson

Heimir Pálsson og Höskuldur Þráinsson Hugvísindasvið Heimir Pálsson og Höskuldur Þráinsson Um Þýðingar Pólsk þýðing með athugasemdum Ritgerð til M.A.-prófs Magdalena Dybka Janúar 2011 Háskóli Íslands Hugvísindasvið Þýðingarfræði Heimir Pálsson

Bardziej szczegółowo

Forstjórastóll, hnakkur og gönguskór

Forstjórastóll, hnakkur og gönguskór 1. TBL. 10. ÁRG. MAÍ 2003 Forstjórastóll, hnakkur og gönguskór Viðtal við Finn Ingólfsson forstjóra VÍS Mikill léttir að hafa sjúkdómatryggingu segir Guðbjörn Svavar Ingvarsson, sem fékk kransæðastíflu

Bardziej szczegółowo

Ristilheilsa og góð melting skiptir mig miklu máli. Helgin

Ristilheilsa og góð melting skiptir mig miklu máli. Helgin KYNNINGARBLAÐ Helgin LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2019 Myndskreytingar í íslenskum námsbókum frá 20. öld eru viðfangsefni sýningarinnar Tíðarandi í teikningum. Sýningin verður opnuð í Bókasafni Kópavogs í dag.

Bardziej szczegółowo

Þunglyndi. Hugvísindasvið. Þýðing og greinargerð á fræðslubæklingnum. Leiðbeiningar fyrir sjúklinga og aðstandendur. eftir Ólaf Þór Ævarsson

Þunglyndi. Hugvísindasvið. Þýðing og greinargerð á fræðslubæklingnum. Leiðbeiningar fyrir sjúklinga og aðstandendur. eftir Ólaf Þór Ævarsson Hugvísindasvið Þýðing og greinargerð á fræðslubæklingnum Þunglyndi Leiðbeiningar fyrir sjúklinga og aðstandendur eftir Ólaf Þór Ævarsson Ritgerð til BA-prófs í íslensku sem öðru máli Miroslaw Ólafur Ambroziak

Bardziej szczegółowo

Íslenska English Polski Español Русский Lietuvių Latviešu

Íslenska English Polski Español Русский Lietuvių Latviešu IS EN PL ES RU LT LV Íslenska English Polski Español Русский Lietuvių Latviešu Fyrstu skrefin Mikilvægar upplýsingar fyrir ríkisborgara EES- & EFTA-ríkjanna sem flytja til Íslands Broszura informacyjna

Bardziej szczegółowo

Saumanámskeið Fatasaumur/ Barnafatasaumur Skrautsaumur Baldering - Skattering Þjóðbúningur - saumaður

Saumanámskeið Fatasaumur/ Barnafatasaumur Skrautsaumur Baldering - Skattering Þjóðbúningur - saumaður ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 2013 SKÓLAR &NÁMSKEIÐ Kynningarblað Lögregluskólinn, stjórnendanámskeið, iðngreinar, Dale Carnegie námskeið, ókeypis íslenskunám á vefnum, hljóðvinnslunám, minnið, heilafóður og góð

Bardziej szczegółowo

Skólabúðir á Reykjum - upplýsingar á pólsku Emilia Mlynska

Skólabúðir á Reykjum - upplýsingar á pólsku Emilia Mlynska Drodzy Rodzice i opiekunowie uczniów klas 7. W dniach (dagana) uczniowie klas 7 jadą w ramach zajęć zwanych Skólabúðir do miejscowości Reykir. Wyruszamy spod naszej szkoły o godz. (kl.) dnia (þann), spotykamy

Bardziej szczegółowo

3. tölublað 17. árgangur Desember 2015

3. tölublað 17. árgangur Desember 2015 3. tölublað 17. árgangur Desember 2015 Eining-Iðja sendir félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár, með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða HLUTI

Bardziej szczegółowo

Baldur í slipp í október. Safnamálin skýrast. Góð heimsókn í GSS. Gullbrá og birnirnir þrír

Baldur í slipp í október. Safnamálin skýrast. Góð heimsókn í GSS. Gullbrá og birnirnir þrír Veffang: www.snaefellingar.is Netfang: SÉRRIT - 34. tbl. 22. árg. 17. september 2015 Stykkishólms - Póstinum er dreift ókeypis í Stykkishólmi og Helgafellssveit og liggur frammi í Grundarfirði, Ólafsvík,

Bardziej szczegółowo

Býrð þú við ofbeldi? Is domestic violence a part of your life? Czy jestes ofiara przemocy?

Býrð þú við ofbeldi? Is domestic violence a part of your life? Czy jestes ofiara przemocy? Býrð þú við ofbeldi? Is domestic violence a part of your life? Czy jestes ofiara przemocy? ... að viðurkenna að maður sé beittur ofbeldi er fyrsta skrefið í að leita sér hjálpar.... admitting to violence

Bardziej szczegółowo

Eyrarrósir 2015 á Rif

Eyrarrósir 2015 á Rif Snæfellsnesi www.landsbankinn.is 692. tbl - 15. árg. 16. apríl 2015 Eyrarrósir 2015 á Rif Ólafsbraut 21, Snæfellsbæ Sími: 410 4190 Netfang: 0190@landsbankinn.is Frystiklefinn í eigu Kára Viðarssonar leikara

Bardziej szczegółowo

Jón Oddur og Jón Bjarni íslenskir tvíburar

Jón Oddur og Jón Bjarni íslenskir tvíburar Hugvísindasvið Jón Oddur og Jón Bjarni íslenskir tvíburar Þýðing á pólsku á hluta af Jóni Oddi og Jóni Bjarna eftir Guðrúnu Helgadóttur Ritgerð til BA-prófs í Íslensku sem öðru máli Malgorzata Lojewska

Bardziej szczegółowo

Ljós tendruð á trjánum

Ljós tendruð á trjánum Snæfellsnesi www.landsbankinn.is 628. tbl - 13. árg. 5. desember 2013 Ljós tendruð á trjánum Ólafsbraut 21, Snæfellsbæ Sími: 410 4190 Netfang: 0190@landsbankinn.is Kveikt var á jólatrjánum í Snæfellsbæ

Bardziej szczegółowo

Pólskur og íslenskur orðaforði leikskólabarna sem eiga pólsku að móðurmáli

Pólskur og íslenskur orðaforði leikskólabarna sem eiga pólsku að móðurmáli Pólskur og íslenskur orðaforði leikskólabarna sem eiga pólsku að móðurmáli Einkenni málumhverfis tvítyngdra barna heima og í leikskóla Aneta Figlarska Lokaverkefni til M.Ed.-prófs Kennaradeild Pólskur

Bardziej szczegółowo

Jólin kvödd. Dósasöfnun. Tryggð við byggð

Jólin kvödd. Dósasöfnun. Tryggð við byggð Tryggð við byggð www.arnijon.is 286. tbl - 7. árg. 11. janúar 2007 Jólin kvödd Sími: 430 7000 - Fax: 430 7001 www.spo.is Ólafsvík Hábrekka 11 er samkv fasteignamati alls 179,6 fm á einni hæð. Gengið er

Bardziej szczegółowo

Fyrstu nemendur 5 ára leikskólans Álfabergs ásamt hluta starfsfólksins. Túnhvammur fegurst gatna. Kvenlegt fegurðarskyn á görðum bæjarbúa

Fyrstu nemendur 5 ára leikskólans Álfabergs ásamt hluta starfsfólksins. Túnhvammur fegurst gatna. Kvenlegt fegurðarskyn á görðum bæjarbúa www.fjardarposturinn.is ISSN 1670-4169 30. tbl. 24. árg. 2006 Fimmtudagur 17. ágúst Upplag 8.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi www.66north.is Miðhraun 11 - Sími 535 6600 Fiskur veitir

Bardziej szczegółowo

Íslenskur húmor, skáldskapur og menning í pólskri þýðingu

Íslenskur húmor, skáldskapur og menning í pólskri þýðingu Háskóli Íslands Hugvísindasvið Íslenska sem annað mál Íslenskur húmor, skáldskapur og menning í pólskri þýðingu Þýðing á hluta af skáldsögunni Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson ásamt greinagerð.

Bardziej szczegółowo

NORÐURLJÓS. Fréttabréf Norðuráls. 10. tbl Ritstjórar: Sólveig Kr. Bergmann og Trausti Gylfason Ábyrgð: Ágúst F. Hafberg

NORÐURLJÓS. Fréttabréf Norðuráls. 10. tbl Ritstjórar: Sólveig Kr. Bergmann og Trausti Gylfason Ábyrgð: Ágúst F. Hafberg NORÐURLJÓS Fréttabréf Norðuráls 10. tbl. 2013 Ritstjórar: Sólveig Kr. Bergmann og Trausti Gylfason Ábyrgð: Ágúst F. Hafberg Ritnefnd: Aðalheiður Skarphéðinsdóttir, Ása Birna Viðarsdóttir, Bjarni Ingi Björnsson,

Bardziej szczegółowo

Minnihlutinn vill fella skipulag á Völlum 7. Telur of mörgu ábótavant við skipulagið

Minnihlutinn vill fella skipulag á Völlum 7. Telur of mörgu ábótavant við skipulagið www.fjardarposturinn.is ISSN 1670-4169 39. tbl. 25. árg. 2007 Fimmtudagur 18. október Upplag 9.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi www.66north.is Miðhraun 11 - Sími 535 6600 Þegar þú

Bardziej szczegółowo

þegar Fjöl menningarhátíðin

þegar Fjöl menningarhátíðin 805. tbl - 17. árg. 25. október 2017 Fjölmenningarhátíð Það var mikið um dýrðir í Frysti klefanum á síðasta laugardag þegar Fjöl menningarhátíðin var haldin. Hún hefur nú verið árleg í nokkur ár og heppnast

Bardziej szczegółowo

Við viljum byrja á því að bjóða ykkur hjartanlega velkomin í leikskólann okkar.

Við viljum byrja á því að bjóða ykkur hjartanlega velkomin í leikskólann okkar. Foreldrahandbók VELKOMIN á Seljaborg Við viljum byrja á því að bjóða ykkur hjartanlega velkomin í leikskólann okkar. Hér má finna helstu upplýsingar um leikskólann og það starf sem hér fer fram. Starfsfólk

Bardziej szczegółowo

Olíurækt í Snæfellsbæ

Olíurækt í Snæfellsbæ Snæfellsnesi www.landsbankinn.is Það var bjartur og stilltur haust dagur þegar þreskivélin fór um akurinn í Böðvarsholti á dögunum. Nú er búið að þurrka fræin en uppskeran er 3,5 tonn. Ekki er þó komið

Bardziej szczegółowo

Efnisyfirlit. Útgefandi: Vinnumálastofnun Ritstjóri: Karl Sigurðsson Hönnun kápu: Alprent Prentvinnsla: Litróf

Efnisyfirlit. Útgefandi: Vinnumálastofnun Ritstjóri: Karl Sigurðsson Hönnun kápu: Alprent Prentvinnsla: Litróf Efnisyfirlit Pistill forstjóra..................................... 1 Skipurit og stjórn Vinnumálastofnunar................. 2 Starfið í hnotskurn................................. 3 Vinnumarkaðurinn.................................

Bardziej szczegółowo

Orlofsstaðir 2011 Sprawy urlopowe Holiday matters. Viltu fara með í Einingar-Iðjuferð? Á bls. 8 er fjallað um orlofsferðir sumarsins.

Orlofsstaðir 2011 Sprawy urlopowe Holiday matters. Viltu fara með í Einingar-Iðjuferð? Á bls. 8 er fjallað um orlofsferðir sumarsins. 1. tölublað 13. árgangur Mars 2011 Viltu fara með í Einingar-Iðjuferð? Á bls. 8 er fjallað um orlofsferðir sumarsins. Orlofsstaðir 2011 Sprawy urlopowe Holiday matters MAE FLUGFELAG.IS Gleðilegt SKE MM

Bardziej szczegółowo

853. tbl árg. 15. nóvember 2018

853. tbl árg. 15. nóvember 2018 853. tbl - 18. árg. 15. nóvember 2018 Gleðja börn í Úkraínu Jól í skókassa er alþjóðlegt verkefni á vegum KFUM og KFUK sem felst í því að gleðja fátæk börn í Úkraínu. Útbúnar eru sérstakar jólagjafir r

Bardziej szczegółowo

Jólasveinar athugið. Regína Ósk í Klifi. Útnesvegur boðinn út. Tryggð við byggð

Jólasveinar athugið. Regína Ósk í Klifi. Útnesvegur boðinn út. Tryggð við byggð Tryggð við byggð www.arnijon.is 282. tbl - 6. árg. 14. desember 2006 Regína Ósk í Klifi Sími: 430 7000 - Fax: 430 7001 www.spo.is Lista- og menningarnefnd Snæfellsbæjar bauð til tónleika sl. fimmtudagskvöld

Bardziej szczegółowo

Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy

Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy Wyciąg z umowy zbiorowej (kjarasamningur) Réttindi og kjör erlendra starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði Útdráttur úr kjarasamningum

Bardziej szczegółowo

Nytjaplöntur á Íslandi 2017

Nytjaplöntur á Íslandi 2017 Nytjaplöntur á Íslandi 2017 Yrki, sem mælt er með fyrir landbúnað, grasflatir, garðrækt og landgræðslu Varieties recommended for Icelandic agriculture, aminity use and land reclamation Útgefandi/Publisher:

Bardziej szczegółowo

10 ára afmæli Grunnskóla Snæfellsbæjar

10 ára afmæli Grunnskóla Snæfellsbæjar Snæfellsnesi www.landsbankinn.is Föstudaginn 23.maí var haldið upp á 10 ára starfs afmæli Grunn skóla Snæ fellsbæjar en til hans var stofnað árið 2004. Á afmælisdaginn voru í raun haldnar þrjár afmælisveislur,

Bardziej szczegółowo

Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy

Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy Wyciąg z umowy zbiorowej (kjarasamningur) Réttindi og kjör erlendra starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði Útdráttur úr kjarasamningum

Bardziej szczegółowo

Varðskipið Þór færði Rifsbaujuna

Varðskipið Þór færði Rifsbaujuna Snæfellsnesi www.landsbankinn.is 602. tbl - 13. árg. 16. maí 2013 Ólafsbraut 21, Snæfellsbæ Sími: 410 4190 Netfang: 0190@landsbankinn.is Varðskipið Þór færði Rifsbaujuna Þegar íbúar Snæfellsbæjar vöknuðu

Bardziej szczegółowo

GÓÐAR GJAFAHUGMYNDIR

GÓÐAR GJAFAHUGMYNDIR GÓÐAR GJAFAHUGMYNDIR fyrir fólkið þitt og heimilið Gönguskór og stígvél Fyrir börn og fullorðna Nilfisk háþrýstidælur og ryksugur Flíspeysur með og án símavasa. Verð frá kr. 6.495,- Ferðahátalarar og þráðlaus

Bardziej szczegółowo

1. tölublað 10. árgangur Mars Orlofsstaðir 2008 Glæsilegt hús á Spáni! Eining-Iðja á Siglufirði Sprawy urlopowe Holiday matters

1. tölublað 10. árgangur Mars Orlofsstaðir 2008 Glæsilegt hús á Spáni! Eining-Iðja á Siglufirði Sprawy urlopowe Holiday matters 1. tölublað 10. árgangur Mars 2008 Orlofsstaðir 2008 Glæsilegt hús á Spáni! Eining-Iðja á Siglufirði Sprawy urlopowe Holiday matters Hugsaðu um hollustuna! Svalandi, próteinríkur og fitulaus Fitusnauðar

Bardziej szczegółowo

Dósasöfnun Fimmtudaginn 18. september kl.17:30. Salatbar. Fótboltamaraþon Snæfellsnessamstarfs

Dósasöfnun Fimmtudaginn 18. september kl.17:30. Salatbar. Fótboltamaraþon Snæfellsnessamstarfs Snæfellsnesi www.landsbankinn.is Snæfellsnessamstarfið í fótbolta stóð fyrir fót bolta maraþoni í Íþróttahúsi Snæfells bæjar um síðustu helgi. Maraþonið hófst strax að loknum síðasta heima leik mfl. Víkings

Bardziej szczegółowo

8. tölublað 2015 Fimmtudagur 30. apríl Blað nr árg. Upplag

8. tölublað 2015 Fimmtudagur 30. apríl Blað nr árg. Upplag 14 32 56 Ekki enn náð Strandameti 8. tölublað 2015 Fimmtudagur 30. apríl Blað nr. 441 21. árg. Upplag 32.000 Í Bananahúsi Garðyrkjuskólans að Reykjum kennir margra grasa. Það vekur alltaf undrun útlendinga

Bardziej szczegółowo

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 66 ISSN árgangur I EES-STOFNANIR

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 66 ISSN árgangur I EES-STOFNANIR ÍSLENSK útgáfa EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins I EES-STOFNANIR 1. Sameiginlega EES-nefndin II EFTA-STOFNANIR 1. Fastanefnd EFTA-ríkjanna 2. Eftirlitsstofnun EFTA ISSN 1022-9337 Nr. 66

Bardziej szczegółowo

Í s l e n s k t d a g a t a l á r i ð m e ð f r ó ð l e i k s k o r n u m

Í s l e n s k t d a g a t a l á r i ð m e ð f r ó ð l e i k s k o r n u m Í s l e n s k t d a g a t a l á r i ð 2 0 0 9 m e ð f r ó ð l e i k s k o r n u m 2009-01 janúar 2009-02 febrúar 2009-03 mars 2009-04 apríl má tý óð þó fr la su má tý óð þó fr la su má tý óð þó fr la su

Bardziej szczegółowo

3. tölublað 16. árgangur Desember 2014

3. tölublað 16. árgangur Desember 2014 3. tölublað 16. árgangur Desember 2014 Eining-Iðja sendir félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár, með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða HLUTI

Bardziej szczegółowo

Fjölmennt danspartý grunnskólanema

Fjölmennt danspartý grunnskólanema 849. tbl - 18. árg. 18. október 2018 Fjölmennt danspartý grunnskólanema Í byrjun október var Jón Pétur Úlfljótsson danskennari í heimsókn í Grunnskóla Snæ fells bæjar norðan Fróðár heiðar, hann ásamt V.

Bardziej szczegółowo

Smáinnsýn í hinn stóra. heim þýðinga

Smáinnsýn í hinn stóra. heim þýðinga Hugvísindasvið Smáinnsýn í hinn stóra heim þýðinga Pólsk þýðing á hluta af Gæludýrunum eftir Braga Ólafsson Ritgerð til BA.-prófs í Íslensku sem öðru máli Artur Sołtysiak Janúar 2013 Háskóli Íslands Íslensku

Bardziej szczegółowo

Íslenska English Polski Español GOAL!

Íslenska English Polski Español GOAL! Íslenska English Polski Español GOAL! Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) Foreldrabæklingur The Football Association of Iceland (KSÍ) Parent s Booklet Islandzki Zwiazek Pilki Noznej (KSÍ) Asociación de Futból

Bardziej szczegółowo

Í s l e n s k t d a g a t a l á r i ð m e ð f r ó ð l e i k s k o r n u m

Í s l e n s k t d a g a t a l á r i ð m e ð f r ó ð l e i k s k o r n u m Í s l e n s k t d a g a t a l á r i ð 2 0 1 6 m e ð f r ó ð l e i k s k o r n u m 2016-01 janúar 2016-02 febrúar 2016-03 mars 2016-04 apríl má tý óð þó fr la su má tý óð þó fr la su má tý óð þó fr la su

Bardziej szczegółowo

Þjóðhátíðardagurinn í Snæfellsbæ

Þjóðhátíðardagurinn í Snæfellsbæ Snæfellsnesi www.landsbankinn.is 557. tbl - 12. árg. 21. júní 2012 Ólafsbraut 21, Snæfellsbæ Sími: 410 4190 Netfang: 0190@landsbankinn.is Þjóðhátíðardagurinn í Snæfellsbæ Sólin skein á bæjarbúa á 17. júní

Bardziej szczegółowo

Lífheimurinn. Litróf náttúrunnar. Hugtakaskýringar á pólsku. Aðlagað námsefni. seinni hluti dýr

Lífheimurinn. Litróf náttúrunnar. Hugtakaskýringar á pólsku. Aðlagað námsefni. seinni hluti dýr Lífheimurinn Litróf náttúrunnar Hugtakaskýringar á pólsku Aðlagað námsefni seinni hluti dýr Helga Hauksdóttir kennsluráðgjafi Skóladeild Akureyrar 2013 1 Bls. 71 Dýr skiptast í hryggleysingja ( Bezkręgowce

Bardziej szczegółowo

Fjör í spurningakeppni

Fjör í spurningakeppni Snæfellsnesi www.landsbankinn.is Önnur umferð í Spurningakeppni Snæfellsbæjar fór fram síðastliðið föstudagskvöld í Röst Hellissandi. Þar kepptu lið frá Hraðbúðinni og Átthagastofu Snæfellsbæjar sem bæði

Bardziej szczegółowo

MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími:

MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: Íslan TI VARNAR ÍSANDI Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Magnús Árni Skúlason ræða um mikilvægi þess að koma Íslandi til varnar á ögurstund. 10 16. nóvember 2008 314. tölublað 8. árgangur SUNNUDAGUR MEST

Bardziej szczegółowo

- vi rá um. Skógarhlí Reykjavík Sími Framkvæmdastjóri - Austurland

- vi rá um. Skógarhlí Reykjavík Sími Framkvæmdastjóri - Austurland Grunnskólakennarar Kennarar óskast til að fara yfir samræmd próf í 10. bekk 2007. Skilyrði er að umsækjendur hafi kennt stærðfræði, íslensku, dönsku eða ensku í 10. bekk. Fyrsta próf er 2. maí. Umsóknarfrestur

Bardziej szczegółowo

Íþróttamenn HSH. Sundlaug Snæfellsbæjar. Lokað verður dagana maí vegna þrifa og lagfæringar

Íþróttamenn HSH. Sundlaug Snæfellsbæjar. Lokað verður dagana maí vegna þrifa og lagfæringar Snæfellsnesi www.landsbankinn.is 697. tbl - 15. árg. 21. maí 2015 Íþróttamenn HSH Ólafsbraut 21, Snæfellsbæ Sími: 410 4190 Netfang: 0190@landsbankinn.is Héraðsmót HSH í frjálsum íþróttum innanhúss var

Bardziej szczegółowo

MÁL- OG LESSKILNINGUR SAMEIGINLEG ÁBYRGÐ UPPLÝSINGAR TIL FORELDRA BARNA Á MIÐSTIGI

MÁL- OG LESSKILNINGUR SAMEIGINLEG ÁBYRGÐ UPPLÝSINGAR TIL FORELDRA BARNA Á MIÐSTIGI MÁL- OG LESSKILNINGUR SAMEIGINLEG ÁBYRGÐ UPPLÝSINGAR TIL FORELDRA BARNA Á MIÐSTIGI ÞÚ ERT MEÐ BARNINU ÞÍNU Í LIÐI ÞEGAR ÞAÐ EFLIR MÁLÞROSKA SINN OG LESSKILNING MÁL- OG LESSKILNINGUR SAMEIGINLEG ÁBYRGÐ

Bardziej szczegółowo

MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL EVRÓPU 2007

MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL EVRÓPU 2007 MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL EVRÓPU 2007 Dómareifanir 1. hefti 2007 (janúar júní) Mannréttindastofnun Háskóla Íslands Ritstjóri: Björg Thorarensen Ritnefnd: Oddný Mjöll Arnardóttir Skúli Magnússon Mannréttindadómstóll

Bardziej szczegółowo

810. tbl árg. 29. nóvember 2017

810. tbl árg. 29. nóvember 2017 810. tbl - 17. árg. 29. nóvember 2017 Skrautlegir sokkar á jólamóti HSH Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu hélt árlegt jólamót í frjálsum íþróttum um síðustu helgi, mótið var haldið í Íþróttahúsi

Bardziej szczegółowo

Blóðsykursmæling á vegum lions

Blóðsykursmæling á vegum lions Snæfellsnesi www.landsbankinn.is Alþjóðlegi sykursýkis dagurinn var þann 14. nóvember síðast liðinn. Að þessu sinni valdi Al þjóða heilbrigðisstofnunin einkunnar orðin Insulin for life eða insulin til

Bardziej szczegółowo

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 17 ISSN árgangur I EES-STOFNANIR

EES-viðbætir. ÍSLENSK útgáfa. við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Nr. 17 ISSN árgangur I EES-STOFNANIR ÍSLENSK útgáfa EES-viðbætir við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins I EES-STOFNANIR 1. Sameiginlega EES-nefndin II EFTA-STOFNANIR 1. Fastanefnd EFTA-ríkjanna 2. Eftirlitsstofnun EFTA ISSN 1022-9337 Nr. 17

Bardziej szczegółowo

Sérfræðiþjónusta: starfsviðmið forvarna

Sérfræðiþjónusta: starfsviðmið forvarna Sérfræðiþjónusta: starfsviðmið forvarna - Menntun, samhæfni og fjölbreytni skólastarfs - Grunnskólar Hafnarfjarðar Tilraunaútgáfa 2012-2013 Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Desember 2012 Fræðsluþjónusta Hafnarfjarðar

Bardziej szczegółowo

Ríkisskattstjóri boðar róttækar breytingar á skattframtali

Ríkisskattstjóri boðar róttækar breytingar á skattframtali Gjörningaklúbburinn heldur veglega yfirlitssýningu í Hafnarhúsinu. 30 Vetrarsól NÝR BÆKLINGUR FYLGIR MEÐ BLAÐINU Í DAG 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% Laugardagur Lestur meðal 18 49 ára á höfuðborgarsvæðinu

Bardziej szczegółowo

Blóðrautt sólarlag í Bug

Blóðrautt sólarlag í Bug 796. tbl - 17. árg. 23. ágúst 2017 Blóðrautt sólarlag í Bug Mörg undanfarin kvöld hefur mátt sjá ótrúlega liti í sólarlaginu. Það var tilkomumikil sjón að horfa á sólarlagið á dögunum, voru ferðamenn jafnt

Bardziej szczegółowo

Kennaradeild Hug- og félagsvísindasvið Háskólinn á Akureyri 2014

Kennaradeild Hug- og félagsvísindasvið Háskólinn á Akureyri 2014 Menntun tvítyngdra barna í íslensku skólakerfi í ljósi skóla án aðgreiningar og fjölmenningarlegrar menntunar Eigindleg rannsókn á viðhorfum foreldra tvítyngdra barna Magdalena Zawodna Kennaradeild Hug-

Bardziej szczegółowo

KJARASAMNINGAR. Wiecej informacji zanjdziesz na stronie zwiazkow zawodowych

KJARASAMNINGAR. Wiecej informacji zanjdziesz na stronie zwiazkow zawodowych KJARASAMNINGAR 2014 Ávarp til félagsmanna 1 A new collective agreement 2 Nowa umowa zbiorowa stowarzyszenia 3 Nýr aðfarasamningur 4 Launaflokkar 5 Hlutfallsleg hækkun í launatöflu 6 Krónutöluhækkun í launatöflu

Bardziej szczegółowo

Lokaskýrsla verkefnisins Gaman saman Fjölskyldumorgnar - Fjölskyldusamvera

Lokaskýrsla verkefnisins Gaman saman Fjölskyldumorgnar - Fjölskyldusamvera 2012 Lokaskýrsla verkefnisins Gaman saman Fjölskyldumorgnar - Fjölskyldusamvera Inngangur Árið 2010-2011 fór af stað tilraunaverkefni í leikskólanum Garðaborg sem kallast Gaman saman á pólsku Razem Raźniej

Bardziej szczegółowo

Enduropnun Sjóminjasafnsins

Enduropnun Sjóminjasafnsins 792. tbl - 17. árg. 14. júní 2017 Enduropnun Sjóminjasafnsins Miklar breytingar hafa farið fram á Sjóminjasafninu á Hellissandi undanfarið og var það opnað aftur um síðustu helgi. Á safninu eru nú tvær

Bardziej szczegółowo