M PÓSTURINN IÐBÆJAR. Meðal annars. Sumarblað. Listahátíð í Reykjavík 2008 Listasafn Reykjavíkur Skólavörðustígur. Maí.

Podobne dokumenty
III. Niðurstöður í hnotskurn Podsumowanie ankiety

Hér vantar upplýsingar á pólsku

Blábarnabókarþýðingarfræðiritgerð

Við og börnin okkar. My i nasze dzieci. Hvert get ég leitað? Gdzie mogę się zwrócić o pomoc?

Afleggjarinn í pólskri þýðingu

ATKVÆÐAGREIÐSLA GŁOSOWANIE VOTE. Kæru félagar. Dear Colleagues. Drodzy związkowcy

HÚSALEIGUSAMNINGUR UM ÍBÚÐARHÚSNÆÐI UMOWA NAJMU LOKALU MIESZKALNEGO

Skýin. Sumri hallar. Sumri hallar, hausta fer, heyrir snjallir ýtar, hafa fjallahnjúkarnir húfur mjallahvítar.

HÚSALEIGUSAMNINGUR UM ÍBÚÐARHÚSNÆÐI UMOWA NAJMU LOKALU MIESZKALNEGO

5 kafli Ljós - wiato. Orðaforði bls hugtak merking termin polski definicja. inwersja rozproszona

Við og börnin okkar. My i nasze dzieci. Ministerstwo Spraw Socjalnych. Miasto Reykjavik. Reykjavík 2012

Tvö þrjú fjögur tungumál? Dwa trzy cztery języki?

Að rata rétta leið og hrekjast ekki af henni.

Q1 Barninu mínu líður vel í skólanum.(moje dziecko czuje się dobrze w szkole - My child enjoys staying at the school)

2. kafli Eðli lífsins - Istota ycia



HH kaupir nýtt Rifsnes. Grindhvalir syntu á land

Við viljum byrja á því að bjóða ykkur hjartanlega velkomin í leikskólann okkar.

Áttundi Grænfáninn til Lýsuhólsskóla Þann 24. nóvember flögguðu nemendur og starfsfólk Grunnskóla

3. kafli - Rafmagn og segulmagn Elektryczno i magnetyzm

Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy. Réttindi og kjör erlendra starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði

Baldur í slipp í október. Safnamálin skýrast. Góð heimsókn í GSS. Gullbrá og birnirnir þrír

Lundi í Vigur. Dýrðardagar við Djúp. Stofnað 14. nóvember 1984 Fimmtudagur 23. júlí tbl. 32. árg. Ókeypis eintak. sjá bls. 6 og 7.

Stefna Reykjavíkurborgar gegn einelti, áreitni og ofbeldi. Polityka zapobiegania mobbingowi, molestowaniu i przemocy

Forstjórastóll, hnakkur og gönguskór

Heimir Pálsson og Höskuldur Þráinsson

Lífheimurinn Litróf náttúrunnar

GÓÐAR GJAFAHUGMYNDIR

10 ára afmæli Grunnskóla Snæfellsbæjar

Co mówią obcokrajowcy mieszkający w Reykjaviku?

Saumanámskeið Fatasaumur/ Barnafatasaumur Skrautsaumur Baldering - Skattering Þjóðbúningur - saumaður

Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy

Pólskur og íslenskur orðaforði leikskólabarna sem eiga pólsku að móðurmáli

Eyrarrósir 2015 á Rif

Ríkisskattstjóri boðar róttækar breytingar á skattframtali

þegar Fjöl menningarhátíðin

Einn - Einn - Tveir dagurinn

Fyrstu nemendur 5 ára leikskólans Álfabergs ásamt hluta starfsfólksins. Túnhvammur fegurst gatna. Kvenlegt fegurðarskyn á görðum bæjarbúa

PIERWSZE KROKI. Polski NA ISLANDII. Pólska. Broszura informacyjna dla cudzoziemców osiedlających się na Islandii

Hver er óskin? Háskóli Íslands. Hugvísindasvið Íslenska sem annað mál. Pólsk þýðing á hluta af Galdra-Lofti eftir Jóhann Sigurjónsson

Dauðarósir í pólsku þýðingu

Þjóðhátíðardagurinn í Snæfellsbæ

Olíurækt í Snæfellsbæ

Fjölmennt danspartý grunnskólanema

Íslenska English Polski Español Русский Lietuvių Latviešu

ż ý ý ż ż Ż ż ż Ż Ż ć Ą Ż ő ć Ł ż ż ć ő í Ż Ż Ż Ż ż Ą ć Ą ć ő ż ć Ą ć ý é ď Ź Ę ć Ę ý

Í s l e n s k t d a g a t a l á r i ð m e ð f r ó ð l e i k s k o r n u m

Réttur þinn Mikilvægar upplýsingar fyrir erlendar konur á Íslandi


Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Mogadon 5 mg töflur nítrazepam

Orlofshús vest.is. Vouchery na przeloty Icelandair. verð ur það sama og síð ustu fjögur sumur.



MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími:

AÐALNÁMSKRÁ LEIKSKÓLA 2011 ( kafli)

1. tölublað 10. árgangur Mars Orlofsstaðir 2008 Glæsilegt hús á Spáni! Eining-Iðja á Siglufirði Sprawy urlopowe Holiday matters

NORÐURLJÓS. Fréttabréf Norðuráls. 10. tbl Ritstjórar: Sólveig Kr. Bergmann og Trausti Gylfason Ábyrgð: Ágúst F. Hafberg

ATKVÆÐAGREIÐSLA GŁOSOWANIE VOTE XXXXXXX

Réttur þinn Mikilvægar upplýsingar fyrir erlendar konur á Íslandi

Ż ć Ś Ż Ą ő ć ć Ż ć Ż Ź Ż é Ż ľ ľ ź

Ljós tendruð á trjánum

Polski. Coś dla Ciebie? Działalność sportowa, społeczna i rozrywkowa w Reykjaviku.

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir sjúkling. Tamsulosin Mylan 0,4 mg hart hylki með breyttan losunarhraða tamsulosinhýdróklóríð

Síða 1. Efnisyfirlit

Efnisyfirlit. Útgefandi: Vinnumálastofnun Ritstjóri: Karl Sigurðsson Hönnun kápu: Alprent Prentvinnsla: Litróf

Íþróttamenn HSH. Sundlaug Snæfellsbæjar. Lokað verður dagana maí vegna þrifa og lagfæringar

Smáinnsýn í hinn stóra. heim þýðinga

Síða 1. Efnisyfirlit

853. tbl árg. 15. nóvember 2018

8. tölublað 2015 Fimmtudagur 30. apríl Blað nr árg. Upplag

Fylgiseðill: Upplýsingar fyrir notanda lyfsins. Entocort 2 mg, tafla fyrir endaþarmsdreifu. Búdesóníð

Prawa i warunki pracy cudzoziemców pracujących na islandzkim rynku pracy


Ung-og smábarnavernd Leiðbeiningar um heilsuvernd barna 0 5 ára

Dósasöfnun Fimmtudaginn 18. september kl.17:30. Salatbar. Fótboltamaraþon Snæfellsnessamstarfs

Góðir sigrar Víkinga á heimavelli

Velkomin. Zapraszamy. til samstarfs um leikskólabarnið! Ciebie i twojego przedszkolaka do współpracy! Pólska. Reykjavíkurborg Skóla- og frístundasvið

Skólabúðir á Reykjum - upplýsingar á pólsku Emilia Mlynska

Ristilheilsa og góð melting skiptir mig miklu máli. Helgin

Nytjaplöntur á Íslandi 2017

Komdu og skoðaðu - Himingeiminn

Hlynsal ir gata árs ins 2010

Í s l e n s k t d a g a t a l á r i ð m e ð f r ó ð l e i k s k o r n u m

Enduropnun Sjóminjasafnsins


Jón Oddur og Jón Bjarni íslenskir tvíburar

3. tölublað 17. árgangur Desember 2015

Íslenskur húmor, skáldskapur og menning í pólskri þýðingu

Minnihlutinn vill fella skipulag á Völlum 7. Telur of mörgu ábótavant við skipulagið


3. tölublað 16. árgangur Desember 2014

Varðskipið Þór færði Rifsbaujuna

- vi rá um. Skógarhlí Reykjavík Sími Framkvæmdastjóri - Austurland

Lífheimurinn. Litróf náttúrunnar. Hugtakaskýringar á pólsku. Aðlagað námsefni. seinni hluti dýr

2. THREE COLORS: WHITE - KRZYSZOF KIESLOWSKI, JANÚAR KL. 14:10 3. DR. STRANGELOVE - STANLEY KUBRICK, JANÚAR KL.

Blóðsykursmæling á vegum lions

Jólin kvödd. Dósasöfnun. Tryggð við byggð

Age Class Boys January 12-13, 2019 Race 29

Transkrypt:

M PÓSTURINN 1. TBL. 3. ÁRG. MAÍ 2008 Sumarblað Geymið blaðið IÐBÆJAR Maí Meðal annars Listahátíð í Reykjavík 2008 Listasafn Reykjavíkur Skólavörðustígur

2 Miðbæjarpósturinn Sigrún í Hársögu lætur ekki deigan síga og hefur flutt stofuna sína um set í Austurstræti, enda getur hún ekki hugsað sér að fara úr miðbænum. Ég opnaði Hársögu í Austurstræti 8-10 í júní 2005, en þá hafði ég verið búin að reka Hársögu á Hótel Sögu í yfir 20 ár. Það var alltaf draumur minn að komast í miðbæinn alveg frá því að ég byrjaði að læra. Ég lét þann draum rætast og opnaði útibú í Austurstræti 8-10 þar sem ég fékk húsnæði á leigu hjá þeim sem reka Thorvaldsenbar. 1. mars sl. rann svo leigusamningurinn út og ekki möguleiki á að fá áframhaldandi leigu þar sem stækka átti Thorveldsenbar. Ég vildi alls ekki hverfa úr miðbænum og leitaði eftir nýju húsnæði. Kom þá til mín að húsnæðið við Austurstræti 6 var laust, þannig að ég sló til og færði mig um tvö númer, segir Sigrún Ægisdóttir. Í sama húsnæði var frægur bar sem margir þekkja rekinn til margra ára, Kaffi Austurstræti. Hér er góður andi og er þetta mjög skemmtilegt pláss þar sem opið er báðum megin, bæði við Austurvöll og Austurstræti, segir Sigrún létt í bragði. Hárgreiðslan hefur verið líf Sigrúnar og yndi allt frá 17 ára Hársaga hefur flutt sig um set í Austurstræti aldri. Segir Sigrún að hárgreiðslan sé lífsstíllinn sinn og engin önnur áhugamál komast að þar sem það sé svo margt í kringum starfið sem hún þurfi að sinna. Hefur Sigrún t.a.m. tekið þátt í allskyns keppnum, sýningum, myndatökum, verið í landsliði og keppt með því í Evrópukeppni að ógleymdum störfum fyrir meistarafélagið þar hún situr í stjórn og Intercoiffure (alheims félagsskapur hárgreiðslumanna) sem hún var meðlimur í til margra ára. Ég hef verið með sýningu í Bologna á Ítalíu og tekið þátt í sýningum í París með Intercoiffure og verið á mörgum sýningum hérna heima. Ég hef unnið allnokkra titla í þeim keppnum sem ég hef tekið þátt í, en stærstur var þó titillinn sem ég fékk í fyrra sem var þrefaldur hársnyrtir ársins, litskapandi ársins í hári og svo í 2-3. sæti sem stofa ársins. Í framhaldi af því var ég að vinna til alheimsverðlauna og er mér boðið að koma til Hollywood og taka á móti verðlaunum 7.-9. júní n.k. Verður heil þriggja daga dagskrá í kringum þessa athöfn. Þetta er mikil viðurkenning fyrir mig sem fagmann og hvetur mig til að halda áfram á sömu braut, segir Sigrún að lokum og óskum við henni til hamingju með verðlaunin. Sigrún Ægisdóttir Hanna EINSTÖK GJÖF Öðruvísi brúðhjón Yfirfærum munstur og stafi á sængurver Hannyrðanámskeið Hannyrðavara Barnaföt Fatahönnuðurinn Hanna ber nafn sitt með réttu enda er hún hönnuður á heimsmælikvarða í mikilli útrás. Er hún að hanna mikið fyrir bandarískan og japanskan markað og er í stöðugri sókn þar. En hvernig er með Íslendinga og verslunina sem Hanna er með á Klapparstígnum rétt fyrir ofan Laugaveginn, er ekki mikið um að vera þar? Jú, verslun Íslendinga hefur aukist mikið hjá okkur og láta þeir æ oftar sjá sig í búðinni ásamt ferðamönnunum sem koma mikið við hjá okkur, segir Ingibjörg Hanna Pétursdóttir fatahönnuður sem sem sérhæfir sig í kvennfatnaði úr þæfðu íslensku ullarefni í bómull. Eruð þið eingöngu að hanna fatnað fyrir kvennfólk? Já, það er eingöngu kvennfólk sem við hönnum fyrir. Þar sérhæfum við okkur í þæfingu íslenskrar ullar í samblandi við mismunandi bómullardúka, er áferðin á efninu það mikilvægasta sem við gerum út frá. Það sem við erum að hanna er númer eitt flottar og góðar peysur en við förum líka víðar í hönnuninni og gerum fínustu kápur, kjóla og pils svo eitthvað sé nefnt. Svo erum við líka með allskonar fylgihluti sem eru ómissandi eins og húfur, vettlinga, griflur og fleira, segir Hanna. Kúnnahópurinn er mjög breiður hjá Hönnu en ef hún ætti að nefna einhvern sérstakan aldurshóp sem er stærstur þá eru það konur á aldrinum 30-60 ára. Okkar hugsjón og markmið er að hefja upp ullariðnaðinn á Íslandi og kynna fyrir fólki alla þá miklu möguleika sem hægt er að hanna úr íslenskri ull. Við erum í farsælu samstarfi við Ullarvinnslu frú Láru á Seyðisfirði og einnig við Ístex í Mosfellsbæ, segir Hanna. En hvernig kann Hanna við sig í miðbænum? Ég er ekki búin að vera neitt mjög lengi hérna í miðbænum, rétt rúmt ár, en mér líður mjög vel hérna. Fyrsta árið hér hefur verið virkilega gott, lærdómsríkt og spennandi og vildi ég hvergi annarsstaðar vera en hér í miðbænum, segir Hanna að lokum. Vera - ný kvennfataverslun á Laugavegi 49 Laugarvegi 8 - Sími 551 8640 - www.nalin.is Miðbæjarpósturinn Útgefandi: Hugmyndahúsið ehf. Ritstjóri: Eiríkur Einarsson Umbrot: Frum ehf. Prentun Landsprent Dreifing: Morgunblaðið Auglýsingar: eikie@mi.is Sími 699 7764 Jóhanna Margrét Steindórsdóttir opnaði kvennfataverslunina Vera á Laugavegi 49 í lok febrúar sl. og bjóðum við hana hjartanlega velkomna í miðbæinn. Þar leggur Jóhanna aðallega áherslu á þrjú valinkunn merki, þýskt merki sem heitir Passport, Minus frá Danmörku og hollensku línuna frá Expresso. En hvernig finnst Jóhönnu að vera komin í miðbæinn? Mér finnst alveg frábært að vera komin hingað og er alveg sérstaklega gott að vera á Laugavegi 49. Hef ég fengið einstaklega góðar viðtökur. Ég hef aldrei verið með fataverslun áður, er betur þekkt sem hárgreiðslumeistari og var búin að vera með Hárgreiðslustofuna Möggurnar í 18 ár í Mjóddinni. En mig hafði lengi langað til að opna sérstaka kvennfataverslun með þessum þekktu eðalmerkjum. Svo ég lét til skarar skríða og er þetta orðið að veruleika, segir Jóhanna. Þótt Vera sé fyrst og fremst fataverslun, þá er einnig hægt að fá þar ýmsa aðra hluti eins og glæsilegar slæður, belti, veski og fleira. Er markhópurinn svona frá 30 ára og upp úr. Jóhanna Margrét Steindórsdóttir Full búð af nýjum vörum Laugavegi 69 - Sími 551 0821 -froken-pil.dk

Ítalskur útivistarfatnaður fyrir lifandi fólk Glæsilegur, vandaður fatnaður frá Beretta á Ítalíu. Út að ganga með hundinn eða í bíó? Í veiðitúr eða gefa öndunum brauð? Á hestbak eða í sumarbústaðinn? Þú færð vandaðar Beretta skyrtur, Beretta peysur, Beretta jakka, Beretta undirföt í Veiðimanninum Hafnarstræti 5 Beretta síðan 1526 Veiðimaðurinn síðan1940

4 Miðbæjarpósturinn Listamenn sem skara fram úr á Listahátíð í Reykjavík Wayne Shorter er mest skapandi tónlistarmaður djassins og einn frægasti gesturinn sem hingað hefur komið úr djassheiminum. Fimmtudaginn15. maí hefst þriggja vikna dagskrárveisla Listahátíðar í Reykjavík með fjölbreyttum tónlistar- og sviðlistaviðburðum og miklum fjölda myndlistarsýninga. Viðburðirnir eiga sér stað í sýningarsölum, listasöfnum, galleríum og á götum úti og teygja einnig anga sína út á land. Í ár verður aðaláhersla hátíðarinnar á myndlist, en það var fyrst gert árið 2005 og þótti takast mjög vel. Myndlistin er enn umfangsmeiri í ár og nú eru íslenskir sýningarstjórar í aðalhlutverki. Hátt í 200 íslenskir og erlendir myndlistarmenn taka þátt í yfir 20 sýningum en stærsta verkefnið, Tilraunamaraþon í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi er jafnframt umfangsmesta myndlistarverkefni sem hér hefur farið fram. Dagskrá hátíðarinnar í ár prýðir fjöldi annrra listamanna sem allir skara fram úr hver í sinni grein, jafnt hér heima sem erlendis. Miðar á þá viðburði eru seldir á vef listahátíðar, www.listahatid.is. Söngdívan og saxófónleikarinn Meðal tónlistarviðburða á Listahátíð má nefna tónleika stórmeistara djassins, hins nífalda Grammy-verðlaunahafa Wayne Shorter (24. maí) og einsöngstónleika hinnar glæsilegu bandarísku söngdívu Denyce Graves (1. júní) sem báðir verða í Háskólabíói. Denyce Graves, sem er messósópran, er ein skærasta stjarna söngheimsins um þessar mundir og heillar sífellt nýja aðdáendur, jafnt meðal almennings og gagnrýnenda um heim allan.wayne Shorter hefur í fjölda ára tekist að blanda saman vinsælli og framsækinni tónlist, sem sýnir okkur að hann er án efa einn mest skapandi tónlistarmaðurinn í sögu djassins.til marks um stöðu hans í tónlistarheiminum kaus Downbeat hann besta sópransaxófónleikarinn í sautján ár samfleytt. Enn í dag fylgir honum stór hópur dyggra aðdáenda sem bíður í ofvæni eftir hverju því sem frá honum kemur. LJÓSMYND:HELGI HALLDÓRSSON Það á hús eftir að sökkva í miðri Reykjavíkurtjörn. Amiina, Afríka og Eyjastökk Margir bíða í ofvæni eftir tónleikum Amiinu, Kippa og vina í Undralandi sem verða í porti Hafnarhússins 15. og 16. maí; Jón Ólafsson setur saman einstakan hóp utan um ljóð Steins Steinarrs (29. og 30. maí) og Sigurbjörn Berharðsson heiðrar Þorkel Sigurbjörnsson með afmælistónleikum í Íslensku óperunni 4. júní. Í samstarfi við skólatónleika á Íslandi kemur barnasýning frá Berlín sem heitir Smaragðsdýpið og ekki má gleyma Barða og Keren Ann með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói 5. júní. Listahátíð í Reykjavík og Listahátíðin í Bergen taka höndum saman með Íslenska dansflokknum og Carte Blanche flokknum í glænýju dansverki, Ömbru. Frá Gíneu Bissá kemur vinsælasta hljómsveit Vestur Afríku, Super Mama Djombo, en þeir áttu hér endurkomu í vetur þegar þeir tóku upp nýjan hljómdisk en hópurinn hefur verið útlægur í mörg ár frá heimalandinu. Fyrstu opinberu tónleikar hópsins í Evrópu í 20 ár verða á Listahátíð 30. og 31. maí. Mörg verkefni tengja myndlist við aðrar listgreinar, t.d. Eyjastökkið í Hafnarhúsportinu, slagverkstónleikar með myndlistarmanninum Agli Sæbjörnssyni. Og þá má ekki gleyma rómaðri sýningu Þóru Einarsdóttur frá óperunni í Wiesbaden á Önnu Frank. Myndlist í Reykjavík inni og úti Sérstök dagskrá verður í kringum opnunarhelgi hátíðarinnar á sýningarstöðum og galleríum í Reykjavík og flogið Denyce Graves er eftirsóttust söngdíva í heiminum í dag. verður á vit afar spennandi sýninga á Norður- og Austurlandi. Opnunarhelgardagskránni lýkur á sunnudagskvöldinu með tónlistaruppákomu í Bláa lóninu. Tilraunamaraþon undir stjórn Listasafns Reykjavíkur og Serpentine Gallery í Lundúnum. Sýningunni og verkefninu í heild er stýrt af Hans Ulrich Obrist í samstarfi við Ólaf Elíasson. Meðal annarra stórra sýninga í Reykjavík eru List mót byggingarlist í Listasafni Íslands með verk eftir ýmsa listamenn, s.s. Finnboga Pétursson, Monicu Bonvicini, Elínu Hansdóttur, Steinu Vasulka og Franz West; Draumar um íslenska ægifegurð í íslenskri samtímalist á Kjarvalsstöðum; Endurkast íslensk samtímaljósmyndun, samsýning í Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafninu; verk eftir Paul- Armand Gette og Halldór Ásgeirsson verður að finna í Listasafni ASÍ; og sýning með sænska listamanninum Karl Holmqvist í Nýlistasafninu en safnið á 30 ára starfsafmæli í ár. Galleríin í Reykjavík munu einnig taka þátt í Listahátíð með sýningar á borð við Velkominn-samtímalist frá Króatíu í Gallerí 100 ; sýningu eftir Rúrí í Start Art; verk eftir Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur í Kling & Bang; einkasýningu á verkum Ernesto Neto í Gallerí i8; og sýningu Andreu Maack í Gallerí Ágúst. Nokkur útiverk munu prýða borgina. Dialogue, verk sem Anna Leoniak og Fiann Paul unnu í sameiningu, og sýnir andlitsmyndir af börnum frá afskekktum svæðum á Íslandi verða prentaðar á 1000 álplötur og settar upp á vegg við horn Lækjargötu og Austurstrætis, þar sem bruninn átti sér stað í maí í fyrra. Í Module, verkefni skipulagt af Ladån/The Mobile Box, mun sýningarstaðurinn færast úr stað og verða verkin, sem þar eru sýnd, unnin út frá staðsetningu og umhverfi sýningarstaðarins hverju sinni. Atlantis, eftir Tea Mäkipää og Halldór Úlfarsson, er hús sem að hluta til er sökkt í Tjörnina í Reykjavík og fjallar um hugmyndir um það að komast af.

Miðbæjarpósturinn 5 Landslið íslenkra tónlistarmanna hyllir Stein Steinarr á Listahátíð Ferð án fyrirheits er yfirskrift tónleika sem verða í Íslensku óperunni 29. og 30. maí. Nafnið er sótt í eina af ljóðabókum Steins Steinarrs, en í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu hans. Söngvararnir KK, Ellen Kristjánsdóttir, Helgi Björnsson, Þorsteinn Einarsson (Hjálmum), Hildur Vala og Svavar Knútur (Hraun) munu þar flytja lög sem samin hafa verið við kvæði skáldsins. Umsjón með tónleikunum hefur Jón Ólafsson tónlistarmaður en hann hefur í félagi við Sigurð Bjólu samið ný lög við kvæði Steins og verða þau frumflutt á þessum tónleikum. Það verður spennandi að heyra hvað samstarf þeirra félaga getur af sér. Mörg þekkt lög hafa orðið til við kvæði Steins í gegnum tíðina og má þar nefna Barn, Ræfilskvæði, Verkamaður, Það vex eitt blóm fyrir vestan og Hudson Bay sem dæmi. Eitthvað þessara laga verða vafalítið á dagskránni á þessum tónleikum. Söngvurunum til fulltingis verður hljómsveit skipuð þeim Jóni Ólafssyni, Guðmundi Péturssyni, Helga Svavari Helgasyni, Valdimari Kolbeini Sigurjónssyni, Hrafnkeli Orra Egilssyni og Unu Sveinbjarnardóttur. Langbestir á Laugaveginum Jón Ólafsson hefur gengið með hugmyndina að þessum tónleikum í nokkur ár og með góðri liðveislu hefur hugmyndin nú orðið að veruleika. Hann er einn fjölmargra íslenskra lagahöfunda sem hafa gert lög við kvæði Steins Steinarrs og sennilega er lag hans við Passíusálm no. 51 hvað þekktast (Skyldi manninum ekki leiðast að láta krossfesta sig?) Jón hefur komið víða við á löngum ferli sem tónlistarmaður. Hann hefur leikið á píanó frá blautu barnsbeini og verið afkastamikill lagahöfundur, útsetjari, flytjandi og upptökustjóri á íslenskum plötum síðustu 20 árin. Hann hefur komið að tónlist í fjölda leiksýninga, ýmist sem tónskáld eða tónlistarstjóri, auk þess að semja tónlist fyrir sjónvarp og kvikmyndir. Fyrir þremur árum gaf hann út sína fyrstu sólóplötu og síðan þá hefur önnur bæst í safnið. Jón hefur einnig stýrt tónlistarþáttum í sjónvarpi við miklar vinsældir. Dressmannbúðirnar eru búnar að vera leiðandi á fatamarkaðnum á Íslandi undanfarin áratug. Við erum að selja vandaða vöru á toppverði og það kunna Íslendingar að meta enda þjóð sem líkar að gera góð kaup. Allar búðirnar bjóða í senn upp á fjölbreytt úrval af fötum á vægu verði og góða þjónustu smekkmanna. En auðvitað erum við langbestir hérna á Laugaveginum, með björtustu og fallegustu búðina. Eitthvað hlýtur að draga fólkið að, ég er með langan lista af fastakúnnum sem hvergi annarstaðar vill versla og það er ekki óalgengt í samskiptum mínum við kúnna að skírnarnöfn séu notuð, mun persónulegri þjónusta þannig. Það er mikil uppbygging í gangi hjá okkur núna eins og vegfarendur taka eftir og erum við að byrja á lokakaflanum en hann snýst um að endurnýja framhlið búðarinnar. Þá verður skipt um allt að framan og inngangurinn gerður nýtískulegri en hann er. Það er ekki annað hægt en horfa bjartsýnn fram á veginn þrátt fyrir verðbólgu og vandræði í efnahaginum, við erum með mestu gæðin á besta verðinu og það stuggar engin við okkur í því. Þar af leiðandi er útilokað að tapa á viðskiptum við okkur. Við erum alltaf með dúndurtilboð í gangi hvort sem við auglýsum þau eða ekki, fólk verður bara að gera sér ferð í bæinn og athuga hvað við erum að bralla hverju sinni. Svo má ekki gleyma að langskemmtilegustu tímabil ársins eru framundan, vor og sumar þannig við erum mjög sprækir félagarnir. Viljum bara sjá meira af fólki í bænum, segir Ellert Baldursson verlunarstjóri Dressmann á Laugavegi. Mynd Jónatan Atli Sveinsson

6 Miðbæjarpósturinn Listasafn Reykjavíkur - glæðir miðbæjarlífið og gerir sumarið spennandi Listasafn Reykjavíkur verður heldur betur með viðburði hjá sér á komandi sumri. Af öllu því sem verður á döfinni hjá þeim hvort sem er í Hafnarhúsinu, á Kjarvalsstöðum eða í Ásmundarsafni eru það þrjár einkar athyglisverðar sýningar sem verða í brennidepli hjá þeim í sumar. Það er Tilraunarmaraþonið sem er þungamiðja Listahátíðar í Reykjavík 2008, Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist sem verður á Kjarvalsstöðum og er einnig á dagskrá Listahátíðar og svo sýningin I Hate Nature þar sem Martha Schwartz, landslagsarkitekt og myndlistarmaður reisir gríðarlega stóra innsetningu í garði Kjarvalsstaða. Er það sýning sem er unnin í samvinnu við Félag íslenskra landslagsarkitekta í tilefni af 30 ára afmæli félagsins. Við skulum líta aðeins nánar á þessar þrjár helstu sýningar Listasafns Reykjavíkur sem ávallt er stór þátttakandi í að glæða og virkja lista- og menningarlíf miðbæjarins á ári hverju. KJARVALSSTAÐIR Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist - 18. maí 31. ágúst Panorama eftir Olgu Bergmann sem er meðal listamanna á sýningunni Draumur um ægifegurð í íslenskri samtímalist á Kjarvalssöðum. Á sýningunni eru mörg ný verk eftir framsæknustu listamenn landsins sem byggja á ólíkum hugmyndum þeirra um náttúruna sem fyrirbæri í ljósmyndaog vídeólist. Sýningin spannar allt frá ljósmyndum frá fyrri hluta tuttugustu aldar til innsetninga sem ungir og þekktir, íslenskir listamenn hafa gert. Sýningarstjóri er Æsa Sigurjónsdóttir. Sýningin var fyrst á dagskrá á Bozar í Brussel á hátíðinni Iceand on the Edge 2008. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Landsbankinn er aðalstyrktaraðili sýningarinnar. Frá sýningu Mariana Abramovic í Serpentine galleríinu í fyrrahaust. En hún verður meðal þátttakenda í Tilraunamaraþoninu í Hafnarhúsinu í sumar Hafnarhús Tilraunamaraþon - 15. maí-24. ágúst Tilraunamaraþon er umfangsmesti listviðburður sem Listasafn Reykjavíkur hefur staðið fyrir frá upphafi en að honum koma rúmlega fjörutíu virtir listaog vísindamenn úr alþjóðasamfélaginu. Tilraunamaraþonið er tvíþætt og skiptist annars vegar í lifandi tilraunastofu, sem verður starfrækt fyrir opnum tjöldum fyrstu daga sýningarinnar og hins vegar innsetningar unnar í ólíka miðla sem standa út sumarið. Sýningunni og verkefninu í heild er stýrt af Hans Ulrich Obrist, meðstjórnanda sýninga og viðburða og stjórnanda alþjóðlegra verkefna í Serpentine Gallery í London í samstarfi við listamanninn Ólaf Elíasson. Vegleg sýningaskrá fylgir sýningunni og fer hún í alþjóðlega dreifingu. Tilraunamaraþonið er þungamiðja Listahátíðar í Reykjavík 2008. Sýningin er unnin í samvinnu við Serpentine Gallery. Bakhjarlar Tilraunamaraþonsins eru Orkuveita Reykjavíkur og Icelandair. Blue magnet eftir Roger Hiorn sem verður í Tilraunamaraþoninu. List sem tilraun Viðburðinum má skipta í tvo hluta, annars vegar maraþon þar sem hver tilraunin rekur aðra alla opnunarhelgi Listahátíðar og hins vegar sýning á fjölda innsetninga sem stendur í Hafnarhúsinu mestan hluta sumars. Auk listamannanna í sýningunni er leiðandi vísindamönnum, arkitektum, fræðimönnum og hugsuðum boðin þátttaka í maraþoninu. Þau munu setja upp og kynna fjölbreyttar og ólíkar tilraunir fyrir gestum en viðfangsefnin spanna meðal annars rannsóknir á orku, erfðafræði og minni. Tilraunamaraþon byggir á rómuðum marþonvirðburðum sem Serpentine Gallery hefur staðið fyrir undanfarin tvö ár í Lundúnum. Í fyrrahaust stóð Serpentine Gallery Experiment Marathon yfir í tvo daga en niðurstaða þess verður sérstaklega kynnt í Hafnarhúsinu í skála sem Ólafur Elíasson mun hanna með Einari Þorsteini Ásgeirssyni arkitekt. Sýningarstjórinn, Hans Ulrich Obrist, byggir þennan viðburð að nokkru leyti á sýningu sem hann setti upp ásamt Barböru Vanderlinden árið 1999 í Antwerpen og hét Laboratorium. Gögn frá þeirri sýningu verða einnig hluti af sýningu Hafnarhússins. Þátttakendur: Marina Abramovic, David Adjaye, Aranda/Lasch, Einar Thorsteinn Ásgeirsson, Fia Backström, John Baldessari, Thomas Bayrle, John Brockman, Peter Coles, Tony Conrad, Carlos CruzDiez, Attila Csörgö, Jimmie Durham, Ólafur Elíasson, Brian Eno, Erró, Simone Forti, Ivana Franke, Hreinn Friðfinnsson, Gabríela Friðriksdóttir, Yona Friedman, Aurélien Froment, Francesca von Habsburg, Sharon Hayes, Abhishek Hazra, Florian Hecker, Roger Hiorns, Karl Holmquist, Hilmar B. Janusson, Hekla Dögg Jónsdóttir, Haraldur Jónsson, Karl Ægir Karlsson, Kristján Leósson, Darri Lorenzen, M/M, Jonas Mekas, Gustav Metzger, Neri Oxman, Pedro Reyes, Matthew Ritchie, Israel Rosenfield, Dr. Ruth, Tomas Saraceno, Carolee Schneemann, Stewart Sherman, Thorsteinn I. Sigfússon, Katrín Sigurðardóttir, Luc Steels, Rirkrit Tiravanija, Thor Vilhjálmsson, Tris VonnaMichell, Emily Wardill. Listamenn Anna Hallin,Daníel Þorkell Magnússon,Gjörningaklúbburinn/Icelandic Love Corporation, Halldór Ásgeirsson, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Kristján Guðmundsson, Ólafur Elíasson, Olga Bergmann, Pétur Thomsen, Ragnar Kjartansson, Sigurður Guðjónsson, Spessi, Vigfús Sigurgeirsson. Martha Schwartz - I Hate Nature 18. maí 20. júlí Martha Schwartz I Hate Nature Martha Scwhartz er einn kunnasti, núlifandi landslagsarkitekt í heiminum í dag. Innsetning hennar í garði Kjarvalsstaða skírskotar í senn til sýningarinnar Ægifegurðar og uppplifunar listamannsins á náttúrunni og umræðunni um nýtingu og verndun náttúrunnar. Martha hefur unnið fjölmörg verk í þéttbýli og fer jafnan ótroðnar slóðir í að kanna og nýta nýja möguleika sem landslagið hefur upp á að bjóða. Schwartz er myndlistarmaður og landslagsarkitekt sem í verkum sínum leitast jafnan við að gera báðum listformunum jafn hátt undir höfði. Aðalstyrktaraðili sýningarinnar er Ingibjörg Kristjánsdóttir. Sýningin er unnin í samvinnu við Félag íslenskra landslagsarkítekta í tilefni af 30 ára afmæli félagsins.

Laugavegi 27-101 Reykjavík - Sími 551 1080 - Kulusukart.com Glæsileg undirföt Lífstykkjabúðin var stofnuð sumarið 1916 af kjarnakonunni Elísabetu Foss. Verslunin var því tveggja ára gömul þegar Ísland varð fullvalda ríki og hafði náð 28 ára aldri við sjálfa lýðveldisstofnunina. Fyrirtækið stundaði lengi vel eigin framleiðslu og á árunum fyrir seinna stríð annaði verslunin innlendri eftirspurn eftir lífsykkjum, brjóstahöldum og mjaðmabeltum. Þrátt fyrir háan aldur er lífstykkjabúðin ung í anda og þjónar kvenfólki á öllum aldri. Í dag flytur verslunin inn hágæða undirföt frá öllum heimshornum og brúar kynslóðabil íslenskra kvenna, því að tryggir viðskiptavinir verslunarinnar eru á öllum aldri og koma allstaðar af landinu. Laugavegi 82 - Sími 551 4473 STOFNUÐ 1916

8 Miðbæjarpósturinn Herrahúsið Adam við Laugaveg, þar sem alltaf eitthvað nýtt er að gerast Sverrir Bergmann, eigandi Herrahússins Adam við Laugaveg, þekkir tímana tvenna hvað varðar tísku- og fatabransann enda hefur hann verið í eldlínunni í meira en 30 ár og allan tímann í miðbænum. Við heilsuðum upp á Sverri og spurðum hvað væri að frétta, en það er alltaf eitthvað nýtt að gerast hjá þeim í Herrahúsinu. Það er allt gott að frétta af okkur, og það hefur verið mikið að gera. Þrátt fyrir krepputal í þjóðfélaginu er um 15% aukning það sem af er á þessu ári. Það er alltaf eitthvað nýtt að gerast hjá okkur og nýir hlutir sem við leggjum áherslu á hverju sinni. Við erum alltaf með yfirstærðirnar og erum nú komnir með föt upp í stærðina 86, sem er alveg gríðarlega stórt. Svo erum við með skó allt upp í stærðina 50 (14). Meðal nýjunga erum við með extra-löng bindi fyrir þá sem hafa sveran háls til þess að bindið líti ekki út eins og síð slaufa þegar búið er að binda hnútinn. Við erum alltaf að auka við okkur í Melkavörunum og erum með mikið úrval af Melka skyrtum, einnig Melka galla- og kakibuxum sem hægt er að fá í mjög stórum stærðum. Það hefur komið mörgum skemmtilega á óvart hversu mikið úrval af rykfrökkum við eigum en það virðist ekki vera mikið framboð af þeim í bænum. Svo erum við með mjög sniðuga og vinsæla sportjakka frá Falbe. Þetta eru sportlegir jakkar sem krumpast ekki. Þeir eru með minni púða í öxlum og minna flísilín þannig að þeir eru mun léttari en venjulegir jakkar. Þannig að manni líður eins og að vera í skyrtu þegar maður klæðist þeim. Þess má geta að vörur frá Falbe hafa fengist í Herrahúsinu nánast frá upphafi, en öll kjólföt og smókingar eru frá þeim. Herrahúsið hefur verslað við Falbe frá því það hóf starfsemi sína árið 1965, segir Sverrir. Hvað eruð þið með breiðan markhóp í herrafatnaðinum og herratískunni? Það er mjög breiður hópur manna sem verslar hjá okkur, allt frá ungum mönnum og upp úr. Jafnvel enn yngri því við seldum þó nokkuð af fermingarfötum í ár. Ég hef ekkert mikið verið að auglýsa fyrir þann aldurshóp en við eigum þessar stærðir til sem passa á þá. Við erum með föt frá stærðinni 40-42 og allt upp í 86 eins og fyrr segir. Svo erum við einnig með svona sérstakar extra-long stærðir sem eru fyrir mjög hávaxna stráka og menn. Einnig erum við með fatnað fyrir lágvaxna menn. Svo þjónustum við þá sem þurfa breytingar á fötunum og er það innifalið í verðinu. Við erum með verkstæði á þriðju hæð en þar vinnur klæðskeri allan daginn við að breyta, sníða, og sauma. Það er alltaf nóg að gera enda hefur verið aukning hjá okkur frá ári til árs. Ég vil koma því að hér að við breytum skyrtum þegar þörf er á því. Mjög algengt er að menn hafi þykkan háls en eru grannvaxnir en þá þarf að þrengja skyrturnar og jafnvel að stytta ermar. Þetta gerum við allt og er það innifalið í verði. Ég hef ekki heyrt um neina aðra verslun sem er með þessa þjónustu enda höfum við eignast margan fastakúnnann út á þetta. Það munar alveg rosalega miklu að ermarnar séu ekki langt fram á fingurgóma eða að skyrtan sé ekki alltof víð, segir Sverrir. Ég hef heyrt að þið séuð einnig farnir að sérsauma föt á menn, er eitthvað til í því? Já, það er mikið rétt. Þetta er önnur nýjung sem við erum nýbyrjaðir að bjóða upp á. Þá geta menn valið sér eðalefni og snið fengið auka buxur eða vesti einhneppt eða tvíhneppt föt o.s.frv.við erum með efni frá Ceirutti, Riba, Dormuel og fleiri góðum efnisframleiðendum. Um þessar mundir erum við að sérsauma fyrir forsetann okkar herra Ólaf Ragnar Grímsson. Það er ítalskur klæðskeri sem saumar fyrir Herrahúsið en hann hefur aðsetur í Portúgal. Afgreiðslutími sérsaums tekur þrjár til sex vikur eftir því hvað það er mikið að gera hverju sinni. Þetta er alveg nýtt hjá okkur, segir Sverrir. Sverrir Bergmann í yfirstærð af jakka. Herrahúsið hefur uppá geysimikið úrval af bjóða af jakkafötum, fatnaði og skóm í öllum stærðum Frá saumastofunni Herrahúsið býður uppá Calvin Klein nærfatnað

Miðbæjarpósturinn 9 Skór í yfirstærð nr. 50 við hliðina á algengri stærð. Eins og sjá má er hægt að fá allt til alls í Herrahúsinu, bindi í öllum stærðum, jakka og bara nefndu það. Hvernig er með nanó tæknina í fötunum, er hún alltaf að verða algengari? Já, nanó er alltaf að koma meira og meira inn í fatnaðinn. Þetta er jónatækni sem gerir það að verkum að klæðnaðurinn verður algjörlega vatnsheldur, tekur ekki í sig neinn raka. Blettir eins og af kaffi, rauðvíni, sósum eða bara nefndu það, er liðin tíð. Þetta er eitthvað sem á eftir að aukast til muna í öllum gerðum fatnaðar, og er sérstaklega hentugt fyrir allan ljósan fatnað sem er viðkvæmari fyrir blettum. En nú bara koma engir blettir, þú þurrkar þetta bara af sí svona. Við erum líka komnir með nanó í bindinn, segir Sverrir Bergmann í Herrahúsinu Adam hress að lokum. Það má með sanni segja að sumarið sé komið í Herrahúsið, allt sneisafullt af nýuppteknum sumarvörum sem eru jakkaföt, bolir, skyrtur, buxur, nærföt, stakir jakkar, bindi eða skór. Að ógleymdu miklu úrvali af óbundnum slaufum, axlaböndum, ermahnöppum, bindisnælum, smókingum og mörgu fleiru fyrir herramanninn við allskonar tilefni.

10 Miðbæjarpósturinn Eitt tonn af gulli Jón & Óskar er alhliða skartgripa-, úra- og gjafavöruverslun sem var stofnsett árið 1971 og er því 37 ára um þessar mundir. Lengst af rak fyrirtækið eina verslun við Laugaveg 61 í Reykjavík en nýlega hafa bæst við verslanir í Smáralind og Kringlunni. Hjá Jóni og Óskari hefur alltaf verið lögð mikil áhersla á að þjóna viðskiptavinum í trúlofunar- og giftingarhugleiðingum og eftir þennan langa tíma sem fyrirtækið hefur starfað er óhætt að fullyrða að stór hluti Íslendinga ber í dag hringa frá fyrirtækinu. Það má áætla að gullið sem viðskiptavinir fyrirtækisins bera á fingrum sér í formi trúlofunar- og giftingahringa slagi hátt í tonnið. Sígildir hringar alltaf vinsælir Einbaugar, þessir sígildu og klassísku hringar hafa alltaf verið mjög vinsælir hjá Jóni og Óskari. Þá má fá bæði í gulu og hvítu gulli og misjafnlega breiða. Jafnframt koma þeir í mismunandi þykkt og stundum eru þeir kúptir að innan sem mörgum finnst þægilegra. Hinn klassíski einbaugur er mjög fallegur á hendi og fer vel með öðrum hringum. Munstraðir hringar og íslensk hönnun Hjá Jóni og Óskari er í boði mikið úrval af munstruðum hringum af ýmsu tagi og hringum þar sem hvítu- og gulu gulli er blandað saman. Jafnframt hefur verið mjög vinsælt að handgrafa í hringana og hefur gamla íslenska höfðaletrið þá oftast verið notað. Þar velur fólk að setja nöfnin sín eða einhver orð eða tákn sem þeim eru kær. Gullsmiðir fyrirtækisins hafa hannað fjölmargar útgáfur af mynstri og formum sem hafa reynst mjög vinsæl og má sjá glæsilegt úrval hringa á heimasíðu fyrirtækisins www.jonogoskar.is. Demantshringur sem trúlofunarhringur Ameríska hefðin, þ.e.a.s. að daman setji upp demantshring við trúlofun hefur einnig verið að aukast mikið að vinsældum undanfarin misseri. Þegar þessi leið er valin setur karlmaðurinn ekki upp hring en konan setur upp demantshring þegar hennar er beðið. Báðir aðilar setja svo upp einbauga við giftingu. Samkvæmt amerísku hefðinni á hringurinn að kosta sem nemur a.m.k. tveimur mánaðarlaunum herrans en það er að sjálfsögðu ekki bráðnauðsynlegt að vera svo flottur á því þegar þessi leið er valin því hjá Jóni og Óskari er hægt að fá glæsilega demantshringa á verði sem flestir ættu að ráða við. Morgungjafir Sá siður að gefa morgungjafir hefur einnig verið að aukast mjög að vinsældum undanfarin ár og má segja að það sé orðin hefð í íslenskum brúðkaupum. Mega þeir herrar sem gleyma morgungjöfinni eiga von á eitruðum athugasemdum frá sinni heittelskuðu. Í morgungjöf er hefðin að gefa fallegan demantsskartgrip. Svokallaðir alliance hringar eru orðnir ein vinsælasta morgungjöfin en þar er nokkrum demöntum raðað eftir baugnum sem er hafður úr hvítu eða gulu gulli. Demantar í giftingarhringum Undanfarin ár hefur það orðið sífellt algengara að fólk velji að setja demanta í giftingarhringana og þá einkum kvenhringinn. Demantur glæðir hringinn lífi og eykur á fegurð hans. Hér er einnig um að ræða margar útfærslur og má sjá nokkrar þeirra hér á meðfylgjandi myndum. Skemmtilegustu viðskiptavinirnir Hjá Jóni og Óskari eru þeir viðskiptavinir sem kaupa trúlofunar- og giftingarhringi í miklu uppáhaldi. Þeir hafa ákveðið að treysta fyrirtækinu fyrir kaupum sem eiga að endast alla ævi og sú ákvörðun þeirra er tekin mjög alvarlega. Starfsmenn fyrirtækisins eru tilbúnir að leggja sig alla fram til að valið á hringunum verði sem auðveldast og að ánægja ríki með kaupin og einungis er boðið upp á vandaða hágæðavöru. Gull, hvítagull, platína, palladium, stál, silfur Algengast er að giftingarhringarnir séu hafðir úr gulu gulli en hvítagull eða blanda af gulu og hvítu gulli hefur líka verið mjög vinsæl. Hringar úr platínu eða palladium (sem er platínumálmur) standa einnig til boða en eru mun dýrari en gullhringir og hafa verið minna teknir. Platínumálmarnir hafa þó verið mjög að sækja á erlendis og ekki er ólíklegt að vinsældir þeirra muni aukast hér á landi. Hringar úr silfri og stáli hafa einnig notið nokkurra vinsælda enda ódýrasti kosturinn sem í boði er í dag.

Frum BLACKY DRESS PBO JEAN PAUL KAPALUA QUI DAMO BRAX Laugavegi 58 Sími 551 4884 stillfashion.is Jón Heiðar Andrésson sígur Valshamar í Eilífsdal

12 Miðbæjarpósturinn Morgunverðartilboð Cappuccino + smurð beygla + Óska jógúrt að eigin vali = 690 kr. Rauðarárstígur 8 Veitinga- og kaffihús í miðborginni Veitingahús Argentína Barónstíg 11a S. 551 9555 www.argentina.is salur@argentina.is Opið mán.-fim. 18-24 og fös.-sun. 17.30-01 American Style Tryggvagötu 26 S. 511 2700 www.americanstyle.is americanstyle@americanstyle.is Opið mán.-fös. 10-23.30 og um helgar 11-23.30 Austur Indíafélagið Hverfisgötu 56 S. 552 1630 www.austurindia.is Á næstu grösum Laugavegi 20b S. 551 8410 www.anaestugrosum.is ang@anaestugrosum.is Opið mán.-lau. 11.30-22 og sun. 17-22 Caruso Þingholtstræti 1 S. 562 7335 www.caruso.is caruso@caruso.is Domo Þingholtsstræti 5 S. 552 5588 www.domo.is Einar Ben Veltusundi 1 S. 511 5090 einarben@einarben.is Fjalakötturinn Aðalstræti 16 S. 514 6000 www.reykjavikhotels.is dinining@hotelcentrum.is Grillhúsið Tryggvagötu 20 S. 562 3456 www.grillhusid.is grillhusid@xnet.is Grænn kostur Skólavörðustíg 8b S. 552 2028 graennkostur@isl.is Hereford - steikhús Laugavegi 53b S. 511 3350 www.hereford.is hereford@hereford.is Hornið Hafnarstræti 15 S. 551 3340 (borðapantanir) www.hornid.is hornid@hornid.is Opið alla daga 11-23.30 Humarhúsið Amtmannsstíg 1 S. 561 3303 www.humarhusid.is humarhusid@humarhusid.is Hótel Holt Bergstaðastræti 37 S. 552 5700 simmi@holt.is Iðnó - Tjarnarbakkinn Vonarstræti 3 S. 562 9700 www.idno.is - idno@xnet.is Indian Mango Frakkastíg 12 S. 551 7722 www.indianmango.is info@indianmango.is Indókína Laugavegi 19 S. 552 2399, 552 3100 Ítalía Laugavegi 11 S. 552 4630 www.italia.is - italia@italia.is Jómfrúin Lækjargötu 4 S. 551 0100 jomfruin@mmedia.is Opið alla daga 11-18 Kaffi Reykjavík Vesturgötu 2 S. 552 3030, 551 7759 (borðapantanir) www.kaffireykjavik.is Kínahúsið Lækjargötu 8 S. 551 1014 La Primavera Austurstræti 9 S. 561 8555 www.laprimavera.is laprimavera@laprimavera.is Lækjarbrekka Bankastræti 2 S. 551 4430 www.laekjarbrekka.is veitingar@laekjarbrekka.is Maru Aðalstræti 12 S. 511 4440 www.maru.is - maru@maru.is Núðluhúsið Laugavegi 59 S. 552 2400 OSUSHI Lækjargötu 2a - Iðu-húsinu 2. hæð S. 561 0562 www.osushi.is - osushi@osushi.is Opið alla daga frá kl. 12-22 Ó Restaurant Þórsgötu 1 S. 511 6677 og 511 6200 www.orestaurant.is - o@restaurant.is Opið sun-fim. 15-22.30. Fös-lau. 15-23.30 Perlan Öskjuhlíð S. 562 0200 www.perlan.is - perlan@perlan.is Pizza Comp Laugavegi 81 S. 561 3838 www.eldsmidjan@eldsmidjan.is Rossopomodoro Laugavegi 40a S. 561 0500 www.rossopodomoro.is Salt Pósthússtræti 2 S. 599 1020 www.saltrestaurant.is Shalimar Austurstræti 4 S. 551 0292 www.shalimar.is shalimar@shalimar.is Silfur Veitingastaðurinn v/austurvöll S. 578 2008 www.silfur.is info@silfur.is Sjávarkjallarinn Aðalstræti 2 S. 511 1212 www.sjavarkjallarinn.is info@sjavarkjallarinn.is Tapas Vesturgötu 3b S. 551 2344 www.tapas.is - tapas@tapas.is Tveir fiskar Geirsgötu 9 S. 511 3474 www.restaurant.is Við Tjörnina Templarasundi 3 S. 551 8666 www.vidtjornina.is vidtjornina@simnet.is Frum STUDIO 29 KAFFIBAR 4TH FLOOR HOTEL STUDIO 29 Á HORNI SNORRABRAUTAR OG LAUGAVEGAR GLÆSILEGUR NÝR KAFFIBAR á tveimur hæðum í miðborginni. Léttar veitingar í hádeginu alla daga og lifandi tónlist föstudaga og laugardaga. Fagmannleg þjónusta. Verið velkomin!

Nýr matseðill - Heilsuréttir Smáréttir - Veisluréttir - Tapasréttir Efri hæð Sólon Einkasamkvæmi - Veislur - Partý Fundir - Tónleikar - Boltinn í beinni Miðvikudaga: Dj Andrés & 110 Fimmtudaga: Einar Ágúst / Ingó Idol Föstudaga: dj Brynjar Már / dj Atli Laugardaga: dj Brynjar Már dj Rikki G / dj Anna Brá / dj Atli www.solon.is Vín og skel Laugavegi 24 S. 534 4700 www.vinogskel.is Þrír frakkar Baldursgötu 14 S. 552 3939 www.3frakkar.com frakkar@islandia.is Barir og Bistro B5 Bankastræti 5 S. 552 9600 Barinn Laugavegi 22 S. 517 5522 Barónspöbb Laugavegi 72 S. 561 4588 Brennslan Pósthússtræti 9 S. 578 2020 Café Victor Hafnarstræti 1-3 S. 561 9555 www.victor.is - info@victor.is Café Cultura Hverfisgötu 18 S. 530 9314 www.cultura.is - info@ahus.is Café Oliver Laugavegi 20a S. 552 2300 www.cafeoliver.is Café París Austurstræti 14 S. 551 1020 www.cafeparis.is afeparis@cafeparis.is Opið mán.-fim. 08-01, fös. 08-03, lau. 09-03, sun. 09-01 Celtic Cross Hverfisgötu 26 S. 511 3240 Cafe Puccini Vitastíg 10a S. 552 5577 Dillon Laugavegi 30 S. 511 2400 Deco Austurstræti 12 Grand Rokk Smiðjustíg 6 S. 551 5522 Glaumbar Tryggvagötu 20 S. 552 6868 Hressingarskálinn Austurstræti 20 S. 561 2240 www.hressingarskalinn.is Hverfisbarinn Hverfisgötu 20 S. 511 6700 Kaffibarinn Bergstaðastræti 1 S. 551 1588 Kofi Tómasar frænda Laugavegi 2 S. 551 1855 Kaffi Amsterdam Hafnarstræti 5 S. 551 3800 Kaffi Vín Laugavegi 73 S. 561 0073 Prikið Bankastræti 12 S. 551 2866 www.prikid.is Q bar Ingólfsstræti 3 S. 551 9660 Red Chili Pósthússtræti 13 S. 562 7830 Sirkus Klapparstíg 30 Sólon Bankastræti 7a S. 562 3232 www.solon.is Studio 29 Laugavegi 101 S. 511 3032 www.4thfloorhotel.is Svarta kaffið Laugavegi 54 S. 551 2999 Thorvaldsen Austurstræti 8 S. 511 1413 Vegamót Vegamótastíg 4 S. 511 3040 vegamot@vegamot.is vegamot@simnet.is Vitabar Bergþórugötu 21 S. 551 7200 Vínbarinn Kirkjutorgi 4 S. 552 4120 Ölstofan Vegamótastíg 4 S.552 4687 Kaffihús Babalú Skólavörðustíg 22a S. 552 2278 Café Roma Rauðarárstíg 8 Grái Kötturinn Hverfisgötu 16a S. 551 1544 Iðukaffi Iðuhúsinu Lækjargötu Kaffifélagið Skólavörðustíg 10 Opið frá 7:30 til 18:30, mánudaga til föstudaga og frá kl. 10:00 til 16:00 á laugardögum. Kaffi Hljómalind Laugavegi 21 S. 517 1980 Kaffi Rót Hafnarstræti 17 Kaffi -setrið Laugavegi 103 S. 552 5444 Kaffitár Bankastræti 8 S. 511 4540 Listasafni Íslands Þjóðminjasafninu www.kaffitar.is Mokka Skólavörðustíg 3a S. 552 1174 Ráðhúskaffi Ráðhúsinu Tjarnargötu 11 S. 411 1070 Segafredo Lækjartorgi S. 562 5200 Te og kaffi Laugavegi 2 Laugavegi 18 Eymundsson Austurstræti 18 Saltfélagið Grandagarði 2 Tíu dropar Laugavegi 27 S. 551 9380 Frum Erum flutt á Laugaveg 59 Kjörgarðshúsið Verið velkomin! Opið mán. - fös. 9-21 Lau. - sun. 17-21 Sími 552 2400 Thailenskur veitingastaður Bjóðum upp á 4ra rétta hádegistilboð á 700 kr. Frítt kaffi með mat.

14 Miðbæjarpósturinn Brim 10 ára í júní Verslunin Brim að Laugvegi 71 mun fagna þeim stóra og merka áfanga að verða 10 ára nú í júní Billabong Sumar 2008 Billabong Sumar 2008 Billabong Sumar 2008 Billabong Sumar 2008 Billabong Sumar 2008 Verslunin Brim að Laugvegi 71 mun fagna þeim stóra og merka áfanga að verða 10 ára nú í júní. Þau Brimarar'' hyggjast fagna þessum merku tímamótum með stæl í sumar og verða uppákomur auglýstar síðar. Verslunin opnaði árið 1998 í Keflavík í 30 fm. húsnæði og síðan tæpu ári síðar að Laugavegi 44 í 120 fermetrum. Árið 1990 var síðan opnuð verslun í Kringlunni og núna fyrir rúmlega ári síðan fluttu þau í 400 fm. húsnæði að Laugavegi 71. Fyrsta árið var einungis boðið upp á vinsælu vörurnar frá Billabong en þau hafa aldeilis bætt við sig og bjóða nú 10 árum seinna upp á 25 merki sem þau flytja inn sjálf og eru með dreifingarrétt á. Búðina þekkja flestir enda skartar hún nú einu mesta og besta úrvali af hágæða brettatísku hér á landi Brim hefur frá upphafi haft þá stefnu að kaupa inn allar flíkur inn í svokölluðu Limited Edition'' magni þ.e að hver flík er eingöngu í boði í mjög takmörkuðu magni. Síðastliðinn vetur var nóg að gera í sölu á snjóbrettum, og snjóbrettafatnaði enda fengum við Íslendingar loksins almennilegan vetur fyrir skíða og brettafólk. Brim selur snjóbretti og allan tilheyrandi búnað á mjög sanngjörnu verði. Næsta vetur ber það hæst að þau ætla að taka inn snjóbrettamerkin ROME og 686 sem eru meðal allra flottustu merkjanna í bransanum í dag og ætti að gleðja alla snjóbrettaáhugamenn landsins. Kvenfólk jafnt sem karlmenn verlsa mikið í Brim og Billabong Sumar 2008 kom úrvalið af flottum bikiníum og kjólum undirritaðri skemmtilega á óvart. Brim er á tveimur hæðum og er 300 fm. kjallarinn sannkallað draumaland fyrir fatafrík með gífurlegu úrvali af flottum fatnaði. Brim er fjölskyldufyrirtæki og hafa þau ákveðið að þrátt fyrir gengisfellingu krónunar að halda sama verði og fyrir gengishrun. 70% af okkar sumarvörum voru komnar til landsins fyrir veikingu krónunnar og það gengur einfaldlega ekki upp að hækka samskonar vörur sem komu eftir það um allt að 30%'' segja þau í Brim og væri óskandi fyrir okkur kaupendur að fleiri hugsuðu þannig. Erlendir ferðamenn koma mikið í Brim og versla vel enda eru vörurnar sem þau selja líklega hvergi ódýrari í Evrópu en hér og allt að 50% ódýrari en gengur og gerist í Skandinavíu. Það er nóg að gerast í búðinni í dag, fullt af nýjum sumarvörum og endalaust til af töff svokölluðum brettafatnaði sem greinarhöfundi þótti þó meira vera bara flottur hátískufatnaður. Mæli með að þið kíkið við og sjáið hvað þau hafa upp á að bjóða. Ég stóðst allavega ekki mátið og gekk út með flottasta bikiníið sem ég hef augum litið. Ása Ott.

Miðbæjarpósturinn 15 Gamla góða vínylplatan í miklum blóma það er mikið úrval af allkyns tónlist af öllum gerðum, straumum og stefnum hjá Ingvari í Kolaportinu Í Kolaportinu er að finna einkar athyglisverða verslun sem er sannkölluð fjársjóðskista fyrir plötusafnarana, þ.e. gömlu góðu vínylpöturnar. Það er hann Ingvar Geirsson, plötusnúður og plötusafnari með meiru, sem rekur búð sína þar. Hjá honum er hægt að sjá þvílikt úrval af allskyns plötum í öllum geirum tónlistarlífsins hvort sem eru íslenskar eða erlendar. Lummar hann á fullt af sjaldgæfum plötum og sumum afar verðmætum sem orginalar. Er ekki laust við það að maður komist á flug í nostalgíu þegar flétt er í gegnum þetta feikna mikla úrval af gömlu góðu hljómplötunni. Heyrst hefur að sífellt fleiri séu farnir að safna plötunum aftur og hún sé að gera mikið come back enda hefur hljómplatan sinn sjarma, bæði hvað varðar sjálft plötuumslagið og svo það að setja plötuna undir nálina. Ég kíkti við hjá Ingvari og átti skemmtilegt spjall við hann. Ég hef aldrei sagt skilið við vínylplöturnar og er búin að vera safna í meira en 24 ár. Á því mikið safn og þar sem þetta hefur verið áhugamál mitt hefur maður fengið mikla þekkingu á þessu. Það er alltaf meiri og meiri áhugi fyrir vínylnum og hafa t.d. plötuspilarar ekki selst eins vel á Íslandi og nú um árabil, segir Ingvar. Þegar maður rýnir yfir safnið sem Ingvar er með þarna í Kolaportinu sér maður hverja perluna á fætur annarri og allt flokkað eftir stíl og stefnum. Hvort sem er rokk, pop, soul, funk, jazz, metal, punk, disco, hip-hop eða hvað sem er. Ég kaupi mikið af plötusöfnum og sía síðan það athyglisverðasta út og kem með það hérna í Kolaportið. Kaupi stór sem lítil söfn, dánarbú og kompudót af plötum. Það er alltaf eitthvað nýtt að finna hjá mér um hverja helgi. Er alltaf með mikið úrval af klassískum titlum eins og Ingvar Geirsson Bítlarnir, Stones, Doors, Zeppelin, Bowie, Dylan og fleira. Ég held að ég geti alveg sagt það að það er engin önnur plötubúð á landinu með eins mikið og fjölbreytt úrval og ég er með hér í Kolaportinu. Ég var t.d. að ganga frá kaupum á heilum 13.000 plötum frá Bandaríkjunum og bíð ég spenntur eftir því að sjá hvað verður þar að finna, segir Ingvar. Ingvar bíður upp á að fólk geti fengið að hlusta á plötur hjá sér um leið og hann flæðir þarna sem mikill þekkingarbolti hvað hljómplöturnar varðar. Það er allskonar fólk sem kemur hérna og kaupa plötur hjá mér, ungir sem aldnir. Svo er mikið af tónlistarmönnum og plötusnúðum sem eru fastakúnnar, enda alltaf eitthvað nýtt að finna hjá mér. Þetta er mjög skemmtilegur bransi og gaman að hitta svona marga sem hafa eitthvað með vínylplöturnar að gera. Ég er sjálfur plötusnúður og er búin að vera síðustu þrjú árin á veitingastaðnum Silfur við Austurvöll um helgar, segir Ingvar að lokum. Já, það verður enginn svikin af því að gera sér ferð niður í Kolaportið og kynna sér það mikla úrval sem Ingvar hefur upp á að bjóða og jafnvel að endurnýja kynnin við vínylplötuna http://www.myspace.com/luckysvinyl DISEL LEE OILILY MOLO LAUGAVEGI 51

16 Miðbæjarpósturinn Gullkúnst Helgu þar sem íslenska hraunið fær að njóta sín Hálsfesti og eyrnalokkar úr hrauni og Apatit Næla úr silfri og íslensku hrauni. Hálsmen úr silfri og íslensku hrauni. Hringar úr silfri, með gulli og hrádemöntum Í Gullkúnst Helgu á Laugavegi 13 hafa skartgripahönnuðir ávallt augun opin fyrir nýjungum og gæta þess að auka sífellt við fjölbreytta listsköpunina. Við hönnunina er íslenska hraunið mikið notað, ýmist með silfri, gulli eða perlum og steinum. Ein sérstaða Gullkúnstar Helgu eru óhefðbundin form demanta. Sérstaklega má nefna óslípaða og óflokkaða hrádemanta og óvenjulega skorna græna demanta. Gullsmiðirnir í Gullkúnst Helgu blanda óhræddir saman silfri, 14 karata gulli og hreinu 24 karata gulli og er útkoman oft listaverki líkast. Þegar þú finnur ekki fyrir skónum sem þú ert í, ertu í mjög góðum málum segir Þorbjörg Ósk Úlfarsdóttir, verslunarstjóri Ecco á Laugavegi Við erum í mikilli sumarstemningu hér í Ecco á Laugaveginum og erum með mjög gott úrval af sumarskóm fyrir dömur, herra og börn, sem eru mjúkir og þægilegir. En það skiptir svo miklu máli að vera í þægilegum skóm ofan á allt hitt þar sem við verjum svo miklum hluta ævi okkar í skóm. Það er vörumerki Ecco að skór frá þeim passa fullkomlega og erum með besta stuðninginn í öllum þínum hreyfingum þegar þú gengur. Mjúkt leðrið, sveigjanlegt efni og léttur dempari í sóla tryggja þægindi. Um leið og þú ferð í Ecco-skó þá líður þér vel og vilt helst ekki fara úr þeim. Ef þú finnur ekki fyrir skónum sem þú ert í er hámarkinu náð, þægindin eru ofar öllu. Talandi um barnaskó, þá tel ég að Ecco séu með bestu barnaskóna sem til eru. Allir barnaskór eru hannaðir með auðvelda hreyfingu í huga, stuðning við ökla og rúmir til að hreyfa tær og virkja tábergið. Það er munur á fyrstu skónum fyrir 0-2 ára, barnaskóm 3-7 ára og krakkaskóm 8-12 ára, þar sem börnin stækka svo fljót og fóturinn breytist eftir því. Það þarf að huga vel að skóm barnanna allt frá fyrstu skóm og upp úr. Eins erum við með mikið úrval af sandölum, en vinsælustu sandalarnir eru hinir frægu Offroadskór sem eru mjög góðir fyrir allskonar útivist eða bara í vinnuna. Einnig er til gott úrval af Þorbjörg Ósk Úlfarsdóttir götuskóm sem eru léttir og þægilegir, styðja vel við ökkla ásamt því að anda vel. Svo erum við líka með nokkrar tegundir af fjallgönguskóm, en þeir eru með Gore-tex vatnsvörn sem er mjög vinsælt. Ásamt skóm sem eru góðir fyrir sumarið eru líka til hjá okkur hefðbundnir skór og spariskór á börn og fullorðna, segir Þorbjörg. Gore-tex, hvernig virkar það? Það er sérstök vatnsvörn sem er mjög góð á alla skó, því hún ver skóna eins og nafnið gefur til kynna fyrir vatni, en hindrar ekki eðlilega öndun leðursins. Það er alltaf best að byrja á því að vatnsverja alla skó og sandala áður en þeir eru notaðir. Svo erum við einnig með gott úrval af skóáburðum sem eru nauðsynlegir á alla skó til að viðhalda gæðum þeirra og útliti sem lengst. Og svo skósápu sem er gott að nota til að þrífa skóna með, segir Þorbjörg í Ecco á Laugaveginum að lokum.

Miðbæjarpósturinn 17 Gangandi vegfarendur þvælast fyrir ökumönnum! Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs. Nú þegar veðrið er að lagast aftur eftir frekar blautan og stundum kaldan vetur, fjölgar þeim sem fá sér göngutúr um miðborgina, sumir með barnavagna eða börn sér við hönd. Stundum er gönguferðin sannkölluð háskaför og má þakka fyrir að ekki heyrast daglega fréttir af slysum á börnum og/eða foreldrum þeirra í gönguferð niður á Tjörn. Og hvað veldur það eru ökumenn sem þykja alveg sjálfsagt að leggja ökutæki sínu á gangstéttir og ekki bara einu eða tveimur dekkjum, heldur öllum bílnum óháð stærð hans. Við það er ekki nokkur leið fyrir gangandi vegfarendur að komast framhjá nema að fara út á götuna. Hver er þá tilgangur með gangstéttinni. Í mínum huga er gangstétt stétt fyrir gangandi vegfarendur. Sumir ökumenn sjá annan tilgang með gangstéttum. Til Bílastæðasjóðs berast margar ábendingar og kvartanir, heldur fleiri kvartanir þó. Við gerum okkar besta að fara eftir ábendingum frá almenningi varðandi hvernig við getum betur staðið okkur í að venja ökumenn af því að þykja það alveg sjálfsagt að leggja upp á gangstétt. Í gegnum vef Reykjavíkurborgar 1,2, og Reykjavík barst okkur svohljóðandi ábending frá foreldri. Að ganga með barnavagn um miðborgina er stundum ekki hægt, bílum hefur verið lagt upp á allar gangstéttir og bara út um allt.. Væri ekki lag að hækka sektirnar svo fólk hætti þessum ósið? Með þessu erindi fylgdi dæmi sem viðkomandi lenti í. Á Skólavörðustíg um Kaffi Roma - fastur punktur í kaffihúsamenningu miðbæjarins daginn kom kona á risastórum jeppa og lagði upp á gangstéttina, rétt fyrir ofan 12 tóna. Ég komst ekki milli bílsins og hússins með barnavagninn hvað fólk getur verið sjálfhverft. Erindið endaði á því að breyta þyrfti hugsunarhætti fólks sem hagar sér svona. Tek ég heilshugar undir það, við þurfum að breyta þessu viðhorfi hjá ökumönnum. Það verður klárlega erfitt að breyta hugsunarhætti ökumanna en mikil áskorun á markmiðalistanum. Úr kvörtunardeildinni barst t.m.a. eftirfarandi. Það eru einfaldlega of fá stæði við þessa götu og þegar ég er að koma heim í leiðindaveðri, oft með íþróttatösku og innkaupapoka og fleira og í leiðindaveðrum eins og hafa verið svo algeng í vetur þá finnst mér alveg fáránlegt af ykkur að ætlast til að maður leggi 2-300 metra frá íbúðinni sinni í stað þess að leggja við gangstéttina sem er meir en nógu breið til að fólk með barnavagna geti komist leiðar sinnar. Síðar í sögunni kom svo. Þið getið varla tekið öll atvik svona bókstaflega. Ég bara get ekki endalaust tekið þátt í svona skrípaleik. Það er spurning hvort eigi að gráta eða hlægja af svona kvörtunum sem okkur berast. Á næstu vikum eiga ökumenn sem stunda það að leggja upp á gangstétt eða í stæði fatlaðra von á umslagi með stöðvunarbrotagjaldi undir bílrúðuna frá Bílastæðasjóði og myndum safnað í úrklippusafn okkar. Nú er átak í gangi gegn þessum brotum. Ég læt hér fylgja með eina stutta athugasemd í lokin. Nú verð ég að viðurkenna að ég fatta ekki þetta grín hjá ykkur. Að mega ekki leggja í stæði fyrir hreyfihamlaða þegar löngu er búið að loka öllum búðum og þjónustu sem einhver þyrfti að nota. Vinsamlega þurrkið þetta út sem allra fyrst. Svo mörg voru þau orð. Studio29 - nýr kaffibar sem lífgar upp á umhverfið Hver kannast ekki við Kaffi Roma á Rauðarárstígnum? Kaffi Roma er orðinn svo fastur punktur í kaffihúsamenningu miðbæjarins og eru þeir margir sem byrja daginn á því að koma við á Roma og fá sér kaffisopa og morgunbakkelsi og kíkja í blöðin. En Kaffi Roma opnar strax klukkan 7 á morgnana. Svo má ekki gleyma öllum þeim sem koma alltaf við í hádeginu og kíkja á hádegistilboðin sem eru í boði hverju sinni. Þetta er virkilega þægilegur staður sem hefur skapað sér fastan sess í miðbænum. Það er hún Ellen Augland sem er konan á bak við Kaffi Roma. Ég er búin að vera með Kaffi Roma í heil sex ár og hefur margt breyst síðan ég byrjaði. Svæðið í kringum Hlemm hefur breyst mikið og líka fólkið. Við höfum verið að þróa þetta hjá okkur og erum með sérstök morgunverðatilboð sem og hádegisverðatilboð.við gerum út á það að hér sé gott að fá sér kaffi og morgunverð snemma á morgnana, erum með nýbakað bakelsi, beyglur, rúnstykki, ciabattas og rosalega gott kaffi. Í hádeginu bjóðum við upp á sérstök tilboð eins og súpu, panini og kaffidrykk að eigin vali. Við erum með mikið úrval af sojavörum eins og mjólk og jógúrt. Erum líka komin með meira heilsusamlegt úrval af smurðu brauði með grænmeti og eggjum. Svo erum við líka með sérstakar heilsukúlur sem eru gerðar eingöngu úr döðlum, hnetum, kókos og kakó, segir Ellen. Viðskiptahópurinn er mjög blandaður. Mikið af fastakúnnum, bæði ungum sem öldnum og svo má sjá þar marga þekkta einstaklinga úr þjóðlífinu. Fólk getur komið hingað til okkar til að fá sér góðan kaffibolla, lesa blöðin í ró og næði eða hittast og spjalla, segir Ellen. Á sumrin eru svo borð og stólar fyrir utan og geta menn tyllt sér þar í sólinni og átt notalegar stundir með góðan kaffisopa og þær veitingar sem Kaffi Roma hefur upp á að bjóða. Sigurður Friðriksson eða Diddi eins og flestir kalla hann, er mikill athafnamaður og lætur ekki sitt eftir liggja þó að hann sé farinn að gera út í landi. En hann hefur alla sína tíð gert út á sjó, verið þekkt aflakló, þangað til að hann söðlaði um fyrir tveimur árum og opnaði hótelið 4th floor á horni Snorrabrautar og Laugavegar. Ekki nóg með það að hótelið hefur stækkað jöfnum höndum síðan og umsvifin verið sífellt meiri, heldur hefur hann nú opnað kaffibarinn Studio 29 á tveimur hæðum í sama húsnæði. Þetta vakti forvitni okkar hjá Miðbæjarpóstinum og fór ég að kanna málin og hitti á Diddi á kaffibarnum og spjallaði við hann og spurði hann út í hvað hafi komið til að hann hafi farið út í þessa miklu framkvæmd og opna þennan stóra og glæsilega kaffibar í miðbænum. Það var þannig að árið 2006 þá opnuðum við, ég og kona mín Evelyn, þetta hótel hérna og fannst mér eftir 2 ár í þeim rekstri að það vantaði eitthvað, einhvern svona stað hérna. Stað sem byði upp á kaffi og veitingar í notalegu andrúmslofti á þessu svæði í miðbænum og þá ekki eingöngu fyrir hótelgesti heldur líka fyrir gesti og gangandi. Þar sem ímyndin á þessu svæði út frá Hlemminum var frekar neikvæð, þá langaði mig til að hressa upp á þetta. Ég var búin að kaupa þó nokkuð af húsnæði hérna, auk þess sem að flottar lúxus íbúðir eru komnar hérna við hliðina. Er þetta svæði í mjög mikilli uppbyggingu og sókn. Svo þegar þetta húsnæði þar sem kaffibarinn er núna var til sölu, þá stökk ég á það og hóf framkvæmdir. Var hugsjónin eingöngu að breyta þessu húsnæði í svona flottan veitingastað og kaffibar. Það var kveikjan að þessu, segir Sigurður. Hvenær var kaffibarinn formlega opnaður? Við opnuðum kaffibarinn síðasta dag febrúarmánaðar og höfum því haft opið hérna í rúma tvo mánuði. Hefur þetta bara farið vel af stað og með stígandi lukku. Höfum við haft mjög gaman af þessu og er það númer eitt, tvö og þrjú.við leggjum mikið upp úr því að fólki líði vel hérna hjá okkur, það sé góður matur og veitingar, gott andrúmsloft og að fólk hafi bara gaman af því að sitja hérna og horfa út á bæjarlífið. Það er allt svo bjart hérna og mikið af stórum gluggum, segir Sigurður. Já, þetta er svo sannarlega staður sem lífgar upp á umhverfið og glæðir enn frekar menningarlífið í miðbænum. En hvenær opnið þið á morgnana? Við opnum strax klukkan átta á morgnana og bjóðum upp á morgunmat og kaffi, jafnt fyrir hótelgesti sem og aðra. Klukkan tíu tökum við svo fram súpu og salatbar. Getur fólk komið hérna við hjá okkur og fengið sér súpu, salat, kaffi, kökur og fleira sem við erum með á boðstólunum allan daginn eða alveg til klukkan ellefu á kvöldin. Þetta er fjölbreyttur veitinga- og kaffibar fyrir alla þá sem eiga leið hér um. Það er mikið af fólki sem vinnur hérna í grendinni og á Laugaveginum sem kemur hérna til okkar, hvort sem er til að fá sér súpu eða eitthvað í svanginn, kaffisopa eða eitthvað annað. Auk þess mikla fjölda sem er í bæjarferð og vill geta staldrað aðeins við og slappað af í góðu andrúmslofti. Við bindum miklar vonir við þennan stað, okkur finnst hann vera vel lukkaður og að þetta sé staður sem er kominn til með að vera, segir Sigurður hress að vanda og óskum við þeim til hamingju með staðinn. sérverslun með prjónavörur, boli og fylgihluti. Laugavegi 44 - Sími 561 4000 opið 10:30-18:00 virka daga og 11-16 laugardaga www.diza.is