Tryggð við byggð www.arnijon.is 282. tbl - 6. árg. 14. desember 2006 Regína Ósk í Klifi Sími: 430 7000 - Fax: 430 7001 www.spo.is Lista- og menningarnefnd Snæfellsbæjar bauð til tónleika sl. fimmtudagskvöld í Klifi. Um 200 manns á öllum aldri mætti til að sjá og hlusta á Regínu Ósk og hljómsveitina sem fylgdi henni og má með sanni segja að Regína hafi heillað fólk upp úr skónum. Hluti hljómsveitarinnar lenti í því að missa bíl útaf veginum vegna hálku á leiðinni og urðu því seinna á ferðinni en áætlað var en það kom ekki að sök. Tónleikarnir voru frábærir og eftir að Regína ósk hafði lokið söngdagskránni gaf hún sér góðan tíma til að árita geisladisk sem hún er nýbúin að gefa út, spjalla við fólk og dásama félagsheimilið sem hún var mjög hrifin af. Lista- og menningarnefnd á þakkir skildar fyrir að bjóða okkur íbúunum upp á svona skemmtanir í aðdraganda jólanna en undanfarin ár hafa stórstjörnur troðið upp í Klifi í boði nefndarinnar og má þar á meðal nefna Sigrúnu Hjálmtýsdóttur (Diddú), Borgardætur, Rúdolf, Pál Hjáltýsson og Ragnheiði Gröndal. Vonandi verður framhald á þessu næstu ár því að þetta er mikill menningarauki. Myndina tók Stefán Guðmundsson Jólasveinar athugið Happdrættismiðarnir í leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Ólafsvíkur eru tilvaldir í skóinn hjá unga fólkinu. Útnesvegur boðinn út Í byrjun desember bauð Vegagerðin út 16,9 km. vegakafla á Útnesvegi í gegnum Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Þessi tæplega 17 km. kafli nær frá Háahrauni að Saxhól. Útboðið felur í sér að byggja upp 6,5 metra breiðan veg með bundnu slitlagi, verkinu á að vera að fullu lokið 15. júlí 2009. Miðarnir fást í Hrund, Kassanum, og í Steinprent Dregið verður í félagsheimilinu á Klifi kl. 11:00 á aðfangadagsmorgun. LIONSKLÚBBUR ÓLAFSVÍKUR Sími: 436 1291 www.bylgja.is Netf. bylgja@bylgja.is
Frumsýning Leikfélag Ólafsvíkur frumsýndi um síðustu helgi leikritið Sex í sveit, gríðarlega góð stemning var í salnum og mikið hlegið. Þessa fyrstu sýningar helgi sá u.þ.b. 150 manns sýninguna og er það fyrst og fremst vegna þess hve margir voru í kaupstað um þessa helgi. Nú hefur verið ákveðið að bæta við a.m.k. einni sýningu og verður hún á milli jóla og nýárs. Flottar jólagjafir Úr og skartgripir Gull og silfur Vörurnar frá Rosental og Georg Jensen komnar aftur Opnunartími til jóla: laugardagur 16. des. 13-16 og 20-21 föstudagur 22. des. 11-12:30, 14-18 og 20-22 Þorláksmessa laugardagur 23. des 11-23 Aðfangadagur sunnudagur 24. des. 10-12 Upplag: 800 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og dreift á hvert heimili í Snæfellsbæ. Blaðið kemur út vikulega. Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími: 436 1617
Vatnsútflutningur eftir áramót Icelandia Plc fyrirtækið sem stendur að vatnsátöppunarverksmiðju í Rifi mun hefja vatnsútflutning fljótlega á næsta ári. Of langt er þó í að verksmiðjan sjálf verði tilbúin til að hægt verði að flytja vatn út í réttum umbúðum og því verður vatnið sett í klædda gáma í aðstöðu sem verið er að koma upp ATBURÐADAGATAL Sunnudagur 17. des. Kl. 15:00 Nemendur úr GS lesa jólasögur ofl. í Pakkhúsinu Mánudagur 18. des. Kl. 18-21 Jólatréssala Víkings í Salthúsinu (Gengið inn úr portinu) Þriðjudagur 19. des. Kl. 19-21 Jólatréssala Víkings í Salthúsinu (Gengið inn úr portinu) Kl. 20-22 Lesið úr nýjum bókum í Pakkhúsinu. Miðvikudagur 21. des. Kl. 19-21 Jólatréssala Víkings í Salthúsinu (Gengið inn úr portinu) Kl. 20:30 Sögustund í Pakkhúsinu Föstudagur 22. des. Kl. 20:30 Valentina og Evgeny spila jólalög Laugardagur 23. des. Þorláksmessa Kl. 17:00 Dregið í leikfangahappdrætti Lkl. Nesþinga í Röst Kl. 21:00 Kirkjukór Ólafsvíkur sér um jólasteminguna hjá Fiskmarkaði Íslands, gámarnir verða síðan fluttir til Englands í átöppunarverksmiðju sem tappa mun vatninu í umbúðir Icelandia. Þetta er gert til að hægt verði að standa við þá sölusamninga sem nú þegar hafa verið gerðir og einnig til að auðvelda kynningu á vatninu sem mun svo auðvelda innkomu verksmiðjunnar í Rifi á markaðinn. Í byrjun næsta árs verður skrifað undir samning við fyrirtæki sem heitir Sidel í Frakklandi en það fyrirtæki mun sjá um smíði vélar verksmiðjunnar. Viðræður hafa staðið yfir við Ístak um að byggja húsnæði verksmiðjunnar og eins og fram hefur komið á síðum Jökuls þá er nýlokið útboði á vatnsveitu sem anna á vatnsþörf verksmiðjunnar og gott betur. GETRAUNIR Jafnteflisstuð er á báðum liðum. Strákarnir hans Sigga Mettu á Agli SH og fólkið hans Einars á Hobbitanum voru með 10 rétta og fengu örlítin vinning síðasta laugardag, þeir verða því að keppa aftur. Nú er um að gera fyrir fólk að fara að mæta og tippa því að alltaf er von á vinning. Opið laugardag frá 10.30 til 13.00 í gamla frystihúsinu Norðurtanga 1. Heitt kaffi á könnuni. Áfram Víkingur. Stjáni Tótu. Sunnudagur 24. des. Aðfangadagur Kl. 11:00 Dregið í jólahappdrætti Lkl. Ólafsvíkur í Klifi Kl. 18:00 Aftansöngur í Ingjaldshólskirkju Kl. 18:00 Aftansöngur í Ólafsvíkurkirkju Mánudagur 25. des. Jóladagur Kl. 14:00 Guðsþjónusta í Hellnakirkju Kl. 21:00 Ljósaguðsþjónusta í Brimilsvallakirkju Þriðjudagur 26. des. Annar í jólum Kl. 11:00 Barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Ingjaldshólskirkju Miðvikudagur 27. des. Kl. 17:00 Jólaball í Klifi Fimmtudagur 28. des. Kl. 20:30 Leikritið Sex í sveit sýnt í Klifi Föstudagur 29. des. Kl. 20:30 Kvikmyndin Mýrin sýnd í Klifi Laugardagur 30. des. Kl. 16:00 Teiknimyndin Skógarstríð sýnd í Klifi Sunnudagur 31. des. Gamlársdagur Kl. 18:00 Aftansöngur í Ólafsvíkurkirkju Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður haldin miðvikudaginn 20. desember 2006 í hátíðarsal skólans. Hátíðin hefst kl. 15:00 og að henni lokinni verða kaffiveitingar í boði skólans. Allir velunnarar skólans eru velkomnir. Skólameistari
16 PIZZA með 2 áleggstegundum og 2L Coke 1.890,- 700,- 16 PIZZA með 2 áleggstegundum, brauðstangir og 2L Coke 2.490,- DVD og Pepsi light Ef verslað er tilboð í desember geturðu sett nafn þitt og heimilisfang í Jólapott Hobbitans og unnið ýmisa glaðninga, s.s gos, pizzur, snakk og margt fleira. Dregið verður úr pottinum 23. desember og vinningar verða keyrðir út á aðfangadag. af DVD myndum mánudaga og þriðjudaga í desember Afsláttur af blandi í poka alla laugardaga. sími 436-1362 og 436-1339.
Jólatréssala Mánudaginn 18. des. frá 18-21 þriðjudaginn 19. des frá 19-21 og miðvikudaginn 20. des frá 19-21 mun hin árlega jólatréssala UMF Víkings fara fram Í SALTHÚSINU (HÚSNÆÐI FISKASAFNSINS) Gengið inn úr portinu JÓLAKVEÐJA UMF. VÍKINGUR Ólafsvíkurkirkja Sunnudagaskóli Sunnudagaskóli nk. sunnudag 17. desember kl. 11.00. Að lokinni stundinni í kirkjunni skreytum við kirkjuna og borðum svo skreyttar piparkökur í Safnaðarheimilinu. Aðventuguðsþjónusta Aðventuguðsþjónusta nk. sunnudag kl. 14.00. Kirkjukór Ólafsvíkur leiðir sálmasöng en einnig kemur til okkar kór skipaður nokkrum Pólverjum sem búsettir eru í Snæfellsbæ og syngja þau fyrir okkur pólskan jólasálm. Dekkja- og smurþjónusta Snæfellsbæjar auglýsir Breytt þjónusta verður frá og með 20. des. til og með 10. janúar 2007 Ef þjónustu vantar hafið samband við Nonna í síma 891 7825 Dekkja- og smurþjónusta Snæfellsbæjar Allir velkomnir Sóknarprestur 80 ára afmæli Smáauglýsingar Bíll til sölu Toyota Avensis station árg 2004. ekinn 50 þús. ABS hemlar - Álfelgur - Fjarstýrðar samlæsingar - Geislaspilari - Hiti í sætum Nagladekk. Mjög gott eintak. Upplýsingar í síma 822-6885. Til leigu er íbúð að Snæfellsási 1, efri hæð, Hellissandi 102 m 2, fjögur svefnherbergi. Til leigu er íbúð, að Hárifi 13, Rifi, þrjú svefnherbergi, 109 m 2 íbúð ásamt 32 m 2 bílskúr. Báðar lausar strax. Einnig til leigu 56 m 2 bílskúr í Ólafsvík. Upplýsingar í síma 8963867 Kristján. Duze mieszkanie do wynajecia 102 m 2 na Snæfellsási 1 na pietrze 4 sypialnie cena wynajmu wynosi 65.000. Rowniez do wynajecia jest duze mieszkanie w Rifi, Háarif 13. 3 sypialnie, 109 m 2. W tym garaz o powierzchni 32 m 2 cena 65.000 miesiecanie. Oba mieszkania sa do wynajecia od zaraz. Garaz do wynajecia w Ólafsvík o powierzchni 56 m 2. Wszelkich informacji udziela Kristján tel. 896-3867 Í tilefni 80 ára afmæla sinna á þessu ári; Gestheiðar Guðrúnar Stefánsdóttur þann 21. desember n.k. og Elinbergs Sveinssonar þann 14. júlí sl.,- efna þau heiðurshjónin til kaffisamsætis fyrir vini og vandamenn, nær og fjær, á afmælisdegi Gestheiðar Guðrúnar. Veislukaffið verður haldið á Hótel Ólafsvík fimmtudagskvöldið 21. desember kl. 20-23! Vonumst til að sjá ykkur sem flest! Verið hjartanlega velkomin! Fjölskyldan Skálholti 11
Íslandsmótið í blaki Jólajökull í lit Jólablað Jökuls kemur út fimmtudaginn 21. desember. Blaðið verður að stórum hluta í lit og því áríðandi að auglýsendur virði skilafrest. Tekið er á móti auglýsingum og jólakveðjum á netfangið steinprent@simnet.is og í síma 436 1617. Skil á jólakveðjum og auglýsingum er fyrir kl. 18 mánudaginn 18. desember. Í nóvember s.l. fór blakdeild Víkings/Reynis á Íslandsmót í blaki yngri flokka. Mótið var haldið í Mosfellsbæ undir stjórn HK, til stóð að halda mótið í Kópavogi en vegna veðurs þurfti að fresta mótinu um eina helgi, þá var húsið upptekið og því þurfti að halda mótið í Mósfellsbæ í staðinn. Krökkunum úr Snæfellsbæ gekk mjög vel og og voru liðin að lenda í 2.-7. sæti. Í 6. deild lentu stelpur í liðinu gulur í 3. sæti og stelpur í rauða liðinu í 5 sæti. Í 7. deild lentu stelpur í bláa liðinu í 3. sæti, liðið grænn í 2. sæti og lið svartur í 4. sæti. Í 3. deild stelpna var aðeins eitt lið. Það var kallað víkingur reynir og þær lentu í 7. sæti. Í 4. flokk drengja var liðið gulur í 1 sæti og rauður í 4. sæti. Í 3. deild drengja lenti liðið víkingur/reynir í 7. sæti. Í 8. deild drengja lenti liðið víkingur/reynir í 4. sæti. Þetta var mjög skemmtileg helgi og gekk krökkunum öllum vel. Blakmótið í Mosfellsbænum var fyrri hluti Íslandsmótsins en seinni hluti Íslansdmótsins verður haldið hér í Snæfellsbæ í vor. JJ og KSR Framhaldsskólakennarar Laus er til umsóknar heil staða þroskaþjálfa eða sérkennara við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Um afleysingu er að ræða frá 1. janúar 2007 til 31. maí 2007. Starfið felst í kennslu á starfsbraut og umsjón með nemendum brautarinnar. Einnig er laus til umsóknar staða frönskukennara í hlutastarf (u.þ.b. 25% starfshlutfall). Samkvæmt 17. gr. laga nr. 86/1998 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra þurfa umsækjendur að hafa kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Kennarasambands Íslands og fjármálaráðherra. Fjölbrautaskóli Snæfellinga tók til starfa í ágúst 2004. Skólinn er leiðandi í breyttum kennsluháttum og skipulagi skólastarfs á framhaldsskólastigi, m.a. með hagnýtingu upplýsingatækni í staðbundnu námi, dreifnámi og fjarnámi. Hugmyndafræði skólans gerir ráð fyrir einstaklingsmiðuðu námi í opnum rýmum með áherslu á hópa- og verkefnavinnu. Leitað er að starfsfólki sem hefur áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og í nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði eða á netfangið gudbjorg@fsn.is í síðasta lagi 27. desember 2006. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar má finna á vef skólans www.fsn.is eða hjá skólameistara (sími: 864-9729 netfang: gudbjorg@fsn.is). Skólameistari
GRUNNSKÓLI SNÆFELLSBÆJAR Hellissandi - Ólafsvík - Lýsuhólsskóla Störf í boði Kennarastarf. Vegna forfalla er laus 100% staða umsjónarkennara í 4. bekk skólaárið 2006-2007. Starfsstöð á Hellissandi. Laun skv. samningi Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Skólaliðastarf. Laus er 50% staða skólaliða í starfsstöðinni í Ólafsvík. Vinnutími skólaliða er frá kl.12-16 og er ráðningartími frá 1. janúar til 15.júní 2007. Laun eru skv. samningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dalaog Snæfellsnessýslu. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal senda til skólastjóra G.S. á póstfangið Grunnskóli Snæfellsbæjar, Ennisbraut 11, 355 Ólafsvík eða með tölvupósti á netfangið maggi@gsnb.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2006 Skólastjóri Nýjar glæsilegar íbúðir í Ólafsvík. Allar upplýsingar á www.nesbyggd.is og í síma 421 2700 Samskonar íbúðir er hægt að sýna áhugasömum í Reykjanesbæ hjá Helga s. 840 6108 eða Páli s. 840 6100 Jólatónleikar Tónlistarskólans Jólatónleikar Tónlistarskóla Snæfellsbæjar voru haldnir mánudaginn 11. des. og þriðjudaginn 12. des. í Klifi. Fjöldinn allur af hæfileikaríkum ungmennum fluttu tónverk af ýmsu tagi og voru samtals flutt rúmlega fimmtíu tónlistaratriði þessa tvo daga og greinilegt að nemendur hafa verið duglegir að æfa sig. Jólatóleikar Tónlistarskóla Snæfellsbæjar á Lýsuhóli verða þriðjudaginn 19. desember. Höfum opnað vöruafgreiðslu að Norðurtanga 1 Farið er frá AÐALFLUTNINGUM Skútuvogi 8, Reykjavík kl. 17:00 alla virka daga. Afgreiðslan er opin frá 08:00-16:00. Síminn er 431 5613, 895 5613, 899 5613