Tryggð við byggð www.arnijon.is 286. tbl - 7. árg. 11. janúar 2007 Jólin kvödd Sími: 430 7000 - Fax: 430 7001 www.spo.is Ólafsvík Hábrekka 11 er samkv fasteignamati alls 179,6 fm á einni hæð. Gengið er inn í forstofuna og á henni eru flísar. Til vinstri úr forstofu er þvottahús með flísum sem einnig er innangegnt í úr eldhúsi. Áfram úr forstofunni er komið inn á rúmgóðan gang (hol) og úr honum til vinstri er eldhúsið með flísum á gólfi og fallegri innréttingu. Úr ganginum til hægri er einnig gengið í stofuna. Í svefnherbergisálmunni eru fjögur herbergi og á þeim er parket og í öllum eru skápar. Baðherbergið er stórt og flísalagt í hólf og gólf. Á bæði gangi og stofu er parket. Úr stofunni er gengið út á stóran sólpall við suðurhlið hússins. Við enda gangsins er gengið inn í hol og þaðan er innangegnt í bílskúrinn sem er mjög rúmgóður. Í enda bílskúrsins er búið að útbúa rúmgott tölvuherbergi. Rafmagnsofnar eru í húsinu og vel er frá öllu gengið í því. Óskað er eftir tilboðum í húseignina. Hellissandur Til sölu Bárðarás 9 sem er fallegt og vel staðsett einbýlishús með bílskúr. Húsið er steinsteypt byggt 1976 alls 174.6 fm þar af er bílskúr 36.5 fm byggður 1979. Í húsinu er forstofa með flísum, fjögur svefnherbergi með parket á gólfum. Stór stofa og borðstofa með parket á gólfum, endunýjað baðherbergi með flísum í hólf og gólf og nýlegir eldhúsgluggar. Þá er rúmgott eldhús með flísum á gólfi. Í húsinu er búr og þvottahús. Húsið er með steyptri loftplötu. Stór sólpallur er við húsið, nýleg girðing, barnagarðhús og leiktæki í garði. Fjarstýrð innkeyrsluhurð á bílskúr og gryfja. Gott hillupláss. Verð aðeins 17.800.000.- Ekkert áhvílandi. Bjart og fallegt hús á frábærum stað Hafnarfjörður. Til sölu er tveggja ára, 94 fm íbúð, í fjölbýli á Daggarvöllum í Hafnarfirði. Hún samanstendur af forstofu, holi, þremur herbergjum, stofu, eldhúsi, baðherbergi, geymslu og þvottahúsi. Á forstofu, þvottahúsi og baðherbergi eru flísar en parket á öðrum gólfum. Íbúðin sem er björt og rúmgóð er á jarðhæð og snýr stofan mót suðri og úr henni er gengið út á 40 fm sólpall. Lóðin er nær fullfrá gengin. Ásett verð er kr 22,9 millj. Skipti á einbýlishúsi í Ólafsvík koma vel til greina. Íbúar Snæfellsbæjar kvöddu jólin á Þrettándanum sem var s.l. laugardag. Mikið var um flugelda og blys út um allan bæ og seinnipart laugardagsins stóðu Lionsklúbbarnir í Ólafsvík fyrir álfagöngu og brennu þar sem lagt var af stað frá Pakkhúsinu í fylgd álfadrottningar og kóngs, auk Grílu púka og álfameyja. Gengið var sem leið lá inn Ólafsbraut og inn fyrir Klif þar sem kveikt var í lítilli brennu og sungin nokkur lög. Lionsklúbbarnir buðu svo bæjarbúum upp á flugeldasýningu til að slá botn í Þrettándann. Í Ólafsvík tíðkast það á Þrettándanum að börn klæða sig í búninga og ganga hús úr húsi og sníkja sér gott í gogginn. Misjafnlega mikið er lagt upp úr búningum og skemmtiatriðum en það hefur heldur aukist að börnin syngi fyrir húsráðendur eða fari með þulur í skiptum fyrir góðgæti. Misjafnt er eftir veðri hve margir krakkar taka þátt í þessum leik, að þessu sinni var veðrið afskaplega gott og margir á ferðinni, fréttir hafa borist af mörgum heimilum þar sem að heimsóknirnar voru yfir 100. Gaman er að fylgjast með hve margir brottfluttir vilja leyfa börnum sínum að upplifa þessa stemmingu og koma vestur til að taka þátt í Þrettándanum. Dósasöfnun Fimmtudaginn 11. janúar kl.18:30 ætlum við að fara í dósasöfnun í Ólafsvík. Er það von okkar, bæjarbúar góðir að þið eigið eitthvað af flöskum handa okkur, hvort sem það er plast, ál eða gler. Til að allt gangi vel og fljótt fyrir sig, væri ágætt að þið sættuð poka eða kassa með flöskunum fyrir utan hús ykkar, að öðrum kosti bönkum við uppá hjá ykkur. P.S. Krakkar mætum öll í húsnæði Ragnars og Ásgeirs, endilega takið mömmu og pabba með, því margar hendur vinna létt verk. Nánari upplýsingar í síma 893 4718 Með fyrirfram þökk. Umf. Víkingur
Ingvaldur Magni íþróttamaður HSH Í hálfleik á leik Snæfell- KR í meistaradeildinni í kvöld voru veittar viðurkenningar til íþróttamanna HSH íþróttamaður HSH 2006 er Ingvaldur Magni Hafsteinsson Snæfelli hann var jafnframt kosin körfuboltamaður HSH 2006 Ingvaldur Magni Hafsteinsson varð fyrir valinu, er hann vel að þessu vali kominn, hefur verið máttarstólpi úrvalsdeildarliðs Snæfells í körfuknattleik síðastliðið keppnistímabil. Ingvaldur Magni átti mjög gott tímabil með Snæfelli á árinu og er afar öflugur bæði sem varnar- og sóknarleikmaður. Það er ekki síst ástundun og dugnaður sem skilað hefur honum á þann stall sem hann er í dag sem körfuknattleiksmaður í fremstu röð á Íslandi. Ingvaldur Magni er góður og skemmtilegur liðsmaður bæði innan sem utan vallar og afar góð fyrirmynd ungra sem aldna í hvívetna. Hann var valinn besti varnarleikmaður íslandsmótsins síðastliðið vor og einnig valinn í fimm manna úrvalslið tímabilsins, af leikmönnum og þjálfurum allra hinna liðanna í úrvalsdeildinni. Betri vitnisburð um árangur er varla hægt að hugsa sér í íþróttum. Þetta var í fyrsta sinn sem HSH útnefndi blakmann Blakmaður HSH 2006 er Sædís Alda Karlsdóttir, UMFG Sædís komst í 12 manna landsliðshóp sem er glæsilegur árangur. Sædís fór með landsliðinu til Danmerkur þar sem spilaðir voru 5 leikir. Sædís hefur stundað blak af mikilli fagmennsku og áhuga. Sædís mætir vel á æfingar og Magni, Einar, Ísólfur, Jón Steinar tók við viðurkenningum Rögnvaldar, María Alma, Sædís Alda, og Geirmundur. Jón Oddur fær sínar viðurkenningar sendar. æfir af metnaði. Hún er aðstoðarþjálfari í krakkablakinu og er þar mikil fyrirmynd hjá krökkunum. Frjálsíþróttamaður HSH 2006 er Geirmundur Vilhjálmsson, UMFG Geirmundur hefur verið fremstur í kastgreinum á Snæfellsnesi og á landsvísu. Hann hefur unnið flestar þær greinar eða komist í verðlaunasæti á þeim mótum sem hann hefur tekið þátt í innan sem og utan héraðs. Hann hefur verið mjög öflugur talsmaður Steinþórsmótanna og frjálsra íþrótta í gegnum árin. Geirmundur tók þátt í nokkrum mótum innan héraðs þetta árið og var þar í fyrsta sæti í nánast öllum þeim greinum sem hann tók þátt í. Einnig er hann ofarlega á afrekslista FRÍ 2006 í öllum kastgreinum, en þar kemur fram árangur á landsvísu. Hestaíþróttamaður HSH 2006 er Ísólfur Líndal Þórisson, Snæfelling Ísólfur, hestaíþróttamaður Snæfellings hefur staðið sig með miklum ágætum í keppni á þessu ári. Hann var sigurvegari eða í verðlaunasæti á flestum mótum Snæfellings á árinu. Hann keppti f.h félagsins á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum og á Íslandsmóti í hestaíþróttum. Ísólfur var einróma kjörinn hestaíþróttamaður Hestamannafélagsins Snæfellings árið 2006. Íþróttamaður Fatlaðra hjá HSH 2006 er Jón Oddur Halldórsson, Reyni Meðal afreka Jóns Odds á árinu má nefna að hann vann til bronsverðlauna í 100 metra hlaupi á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum í flokki T35. Og sigraði í 100m hlaupi á opna þýska meistaramótinu í flokki T35. Hann var einnig kjörinn íþróttamaður fatlaðra á árinu 2006 hjá íþróttasambandi fatlaðra. Knattspyrnumaður HSH 2006 er Einar Hjörleifsson, Víkingi Einar átti gott sumar með Víking Ó og var valinn besti leikmaður m.fl. Víkings en Víkingur endaði í 7. sæti í 1. deild 2006. Hann átti margar frábærar markvörslur í sumar og sú eftirminnilegasta er svokölluð Gordon Banks markvarsla gegn Haukum í síðustu umferðinni þar sem hann skutlaði sér í hornið og sló boltann yfir þverslánna og bjargaði þar með 1. deildar sætinu. Kylfingur HSH 2006 er Rögnvaldur Ólafsson, golfk. Jökli Rögnvaldi gekk mjög vel á síðasliðnu sumri, hann vinnur 7 mót á öllum völlum á Snæfellsnesi. Einnig vinnur hann mjög gott mót á Tungudalsvelli á Ísafirði. Hann vinnur sér inn rétt til að taka þátt í Lexus cup í Skotlandi, þar sem hann náði þriðja sæti á Lexus cup á Íslandi. Hann vinnur í heildina Ragnars og Ásgeirs mótaröð golfklúbbanna á Snæfellsnesi. Rögnvaldur lækkar sig um 1,1 í forgjöf og er þar með næst lægstu forgjöf allar innan HSH, er einnig með hæðsta meðaltal á punktum á árinu af meistaraflokksmönnum sem eru á Snæfellsnesi. Auk þess setti hann glæsilegt vallarmet í Grundarfirði. Hann hefur tekur þátt í KB-Banka mótaröðinni hjá GSÍ. Auk þess hefur hann verið mjög virkur í starfi GJÓ undanfarin ár. Sundmaður HSH 2006 er María Alma Valdimarsdóttir, Snæfell María Alma Valdimarsdóttir Snæfell var stigahæst kvenna á Héraðsmóti HSH í sumar ásamt Oddnýu Össu, UMFG. Hlaut 248 stig fyrir 50m flug og 100m fjór. Sigraði í 1 grein á mótinu, var tvisvar í 1-2 sæti og einu sinni í 2. sæti. Keppti á Íslandsmóti Garpa í apríl 2006, sigraði í 4 greinum í sínum flokki og setti 2 íslandsmet í sínum flokki. Hlaut 530 stig fyrir 50m skriðsund. Keppti á Opna Norðurlandamóti Garpa í október 2006 sem haldið var í Óðinsvé í Danmörku. Keppti í 5 greinum og kom heim með 2 brons. Setti íslandsmet í sínum flokki í 4 greinum. Hlaut 531 stig fyrir 50m skriðsund. HSH óskar íþróttamönnunum til hamingju þau eru vel að þessu titlum komin. Upplag: 800 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og dreift á hvert heimili í Snæfellsbæ. Blaðið kemur út vikulega. Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími: 436 1617
Áskorendaleikurinn er enn í fullum gangi og gerði Sparisjóður Ólafsvíkur sér lítið fyrir og sigraði Hilmar Hauks og Vigfús Örn sem hlupu í skarð fyrir Benjamín Guðmundsson SH helgina áður. Tippdúettinn (Hilmar &Vigfús)skorar á strákana Höfum opnað vöruafgreiðslu að Norðurtanga 1 Farið er frá AÐALFLUTNINGUM Skútuvogi 8, Reykjavík kl. 17:00 alla virka daga. Afgreiðslan er opin frá 08:00-16:00. Síminn er 431 5613, 895 5613, 899 5613 GETRAUNIR á Matthíasi SH. Góð mæting hefur verið undanfarnar helgar og enn og aftur hvetjum við fólk til að mæta og tippa. Skrifstofan er opin sem fyrr frá 10:30-13:00 á laugardag, heitt kaffi á könnunni! Stjáni Tótu Smáauglýsingar Til leigu Til leigu er íbúð að Snæfellsási 1, efri hæð, Hellissandi 102 m2, fjögur svefnherbergi. Til leigu er íbúð, að Hárifi 13, Rifi, þrjú svefnherbergi, 109 m2 íbúð ásamt 32 m2 bílskúr. Báðar lausar strax. Einnig til leigu 56 m2 bílskúr í Ólafsvík. Upplýsingar í síma 8963867 Kristján. Duze mieszkanie do wynajecia 102 m2 na Snæfellsási 1 na pietrze 4 sypialnie cena wynajmu wynosi 65.000. Rowniez do wynajecia jest duze mieszkanie w Rifi, Háarif 13. 3 sypialnie, 109 m2. W tym garaz o powierzchni 32 m2 cena 65.000 miesiecanie. Oba mieszkania sa do wynajecia od zaraz. Garaz do wynajecia w Ólafsvík o powierzchni 56 m2. Wszelkich informacji udziela Kristján tel. 896-3867 Íbúð óskast Fjölskylda óskar eftir íbúð til leigu í Snæfellsbæ. Sími 8973342 Sími: 436 1291 www.bylgja.is Netf. bylgja@bylgja.is
Frelsum Willy Lög og reglur varðandi skip geta um margt verið frábrugðin reglum um hús eða bifreiðar. Þetta á einkum við um kaupskip og herskip. Eitt kaupskip getur verið á framfæri þriggja og jafnvel fleiri ríkja. Það er fánaríki þar sem skipið er skráð, hafnarríki þar sem heimahöfn skipsins er og heimaland útgerðarinnar. Ríkisfang áhafnar hefur auk þess vægi sem fjölgar þeim ríkjum sem að skipinu koma. Þetta nýta útgerðir kaupskipa sér til að draga úr launakostnaði, kostnaði við tryggingar eða hreinlega til að sleppa frá ýmsum kvöðum og lagasetningu sem þeim hugnast ekki. Fyrir nokkrum áratugum voru skipaskoðunarfyrirtæki fá og virt s.s. Lloyds og Veritas en núna eru þau að nálgast hundraðið og mjög mis-virt og virðingarverð. Mörg þeirra eru í eigu skipafélaganna sem þau þjónusta sem mætti líkja við að Toyota umboðið kæmi á fót bifreiðaskoðun eða að lögfræðiskrifstofa tæki að sér löggæslu. Þessar flækjur gera það að verkum að lögsaga yfir kaupskipum er oft á tíðum snúin og mörg kaupför eru nánast löglaus, sérstaklega utan 12 mílna óskoraðs umráðasvæðis strandríkja. Nýlegt strand kaupfars hér á landi litast mjög af þessu umhverfi. Áhöfnin vart mælandi á vestræna tungu, með fyrirmæli upp á stystu mögulegu siglingaleið, skráningu í hentifánaríki og þar fram eftir götunum. Allt í nafni hagræðingar og göfgum málstaðs ódýrs aðflutnings á báxíti. Ekki hætti ég mér lengra á hálan ísinn til að lenda ekki í sömu uppákomu og félagi minn sem var í háskólanámi í Noregi og hugðist skrifa ritgerð um brottkast íslenskra fiskiskipa í Smugunni sálugu. Hann hafði rétt skilað inn hugmynd eða s.k. beinagrind til síns prófessors þegar hann fékk símtal frá íslenskum útgerðarmanni sem átti við hann alllanga einræðu um gildi þagnarinnar. Áherslur ritsmíðarinnar breyttust eitthvað í kjölfarið. Wilson steytti á Suðurnes Sjór þar grandar stáli Fífl er sá sem þetta les En semur sig að áli Guðni Gunnarsson Hlunkabolti Fótbolti fyrir alvöru karlmenn (old boys, 70 kg+) verður í íþróttahúsi Snæfellsbæjar á fimmtudagskvöldum 21:30-22:30. Fyrsti tíminn verður verður fimmtudaginn 11. janúar. Gjaldtaka er 200 kr. á mann pr. tíma sem greiðast á staðnum. Nú er um að gera að komast aftur í toppform fyrir þorrablót og herða á því sem slaknaði um hátíðarnar. Jóga í Rifi Jóga byrjar aftur þriðjudaginn 23. janúar. Kennt verður á sama stað og tíma, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17-18. Allir velkomnir, nýir og gamlir. Sjáumst. Friðgerður s. 694-2361
Bæjarbúar! Minnum á þorrablótið þann 27. janúar n.k. Nánar auglýst síðar. Þorrablótsnefnd. Miðill í Ólafsvík Þann 3. febrúar n.k. veður Ragnheiður Ólafsdóttir miðill í Ólafsvík Nánari upplýsingar hjá Brynju í síma 436-1657 Barnajóga Föstudaginn 12. janúar byrjar barnajóga aftur. Börnum verður kennt hvernig þau geta losað sig sjálf við spennu úr líkamanum með öndun og æfingum. Ílok hvers tíma er síðan slökun sem er mikilvæg fyrir alla. Nánari upplýsingar hjá Brynju í síma 436-1657. Nýjar glæsilegar íbúðir í Ólafsvík. Allar upplýsingar á www.nesbyggd.is og í síma 421 2700 Samskonar íbúðir er hægt að sýna áhugasömum í Reykjanesbæ hjá Helga s. 840 6108 eða Páli s. 840 6100